Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
7. mars 2013

Aukin samvinna Íslands og Færeyja

Aukin samvinna Íslands og Færeyja
Ísland og Færeyjar hafa ákveðið að auka samvinnu sín á milli með sérstakri áherslu á atvinnuþróun og nýsköpun. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja sem undirrituð var á ráðstefnu í Þórshöfn í Færeyjum í vikunni.

Ísland og Færeyjar hafa ákveðið að auka samvinnu sín á milli með sérstakri áherslu á atvinnuþróun og nýsköpun. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja sem undirrituð var á ráðstefnu í Þórshöfn í Færeyjum í vikunni. Á sama tíma var haldin ráðstefna í Færeyjum þar sem fjallað var um orkumál, skapandi greinar og ferðamál beggja landa. Fulltrúi Íslandsstofu á ráðstefnunni var Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina sem hélt erindi um stefnu í markaðsstarfi erlendis, Ísland - allt árið og stöðu ferðamála í dag.

Færeyingar voru fyrsta þjóðin sem bauðst til að lána Íslandi eftir hrunið í október 2008. Til þess að sýna Færeyingum þakklæti ákvað ríkisstjórn Íslands í desember síðastliðnum að standa fyrir ráðstefnu um möguleika landanna á samstarfi, ekki síst varðandi atvinnuþróun og nýsköpun. Stefnt er að því að slík ráðstefna verði haldin til skiptis í löndunum tveimur ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti.

Í viljayfirlýsingu sem atvinnu- og fjármálaráðherrar landanna tveggja undirrituðu er því sérstaklega fagnað „að hafin er samvinna milli Færeyinga og Íslendinga um hugsanlega kosti þess að eiga viðskipti með endurnýjanlega orku um sæstreng milli landanna. Áfram verður byggt á þeim grunni sem lagður hefur verið um samstarf á sviði nýsköpunar með það að markmiði að þekking sem verður til í öðru landinu nýtist í hinu.“

Þar kemur ennfremur fram að leggja eigi áherslu á að varðveita sameiginlega menningararfleifð þjóðanna tveggja og viðhalda vinarhug og samkennd sem ríkt hafi í samskiptum þeirra.


 

Deila