Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
26. september 2016

Aukinn áhugi á vetrarferðmennsku á Top Resa ferðakaupstefnunni í París

Aukinn áhugi á vetrarferðmennsku á Top Resa ferðakaupstefnunni í París

Top Resa ferðakaupstefnan var haldin í París í síðustu viku, dagana 20. – 23.september. Íslandsstofa skipulagði þátttöku og reistur var þjóðarbásinn sem skipaður var sex íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum: Arctic Adventures, Gray Line Iceland, Iceland Rovers, Reykjavík Excursions, Terra Nova Iceland og WOW air.

Fjöldamargir ferðaheildsalar heimsóttu þjóðarbásinn til að kynna sér áfangastaðinn og efna til viðskiptatengsla við fyrirtækin sem þar tóku þátt. Hægt var að greina aukinn áhugi var hjá þeim sem sóttu básinn heim á að selja ferðir til Íslands að vetri til. 

Deila