Besti kokkanemi Spánar valinn á viðburði Bacalao de Islandia
Því hefur markaðsverkefnið Bacalao de Islandia lagt ríka áherslu á að heimsækja kokkaskóla og kynna íslenskan saltaðan þorsk undanfarin ár, í samstarfi við þekkta matreiðslumenn. Bacalao de Islandia hefur nú náð til yfir 1000 matreiðslunema á þeim fimm árum sem verkefnið hefur staðið yfir.
Þann 14. nóvember sl. var stigið nýtt skref í þessu verkefni, en þá fór fram glæsilegur viðburður í CETT matreiðsluskólanum í Barcelona, á vegum Bacalao de Islandia. Blásið var til keppni þar sem færasti saltfiskkokkanemi Spánar var valinn. Hópur fulltrúa frá íslenskum framleiðendum og söluaðilum gerði sér ferð til Barcelona til að fylgjast með keppninni og kynna sér starfið, m.a. með heimsóknum á matarmarkaði og í saltfiskverslanir. Á meðan heimsóttu nemarnir höfuðstöðvar Iceland Seafood í Barcelona.
Í keppninni öttu kappi átta kokkaskólar víðsvegar frá Spáni, meðal annars frá Barcelona, Sevilla, Bilbao, Valencia og Toledo, sem eru einmitt skólar sem Bacalao de Islandia verkefnið hefur heimsótt á undanförnum árum. Sköpunargleði og metnaður einkenndi framlag allra nemanna sem tóku þátt og þurfti dómnefndin, sem m.a. var skipuð Michelin kokkinum Carles Gaig, að taka á honum stóra sínum til að komast að niðurstöðu. Matreiðsluneminn Odalrich Chivia frá Barcelona varð hlutskarpastur, en hann mun koma til Íslands í byrjun næsta árs, ásamt kennara, og sýna íslenskum nemum hvernig Spánverjar elda saltfisk.
Stefnt er að því að hafa þessa keppni árlegan viðburð héðan í frá, enda frábær leið til að festa saltfiskinn okkar í sessi hjá þessum mikilvæga markhópi.