Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
25. nóvember 2013

Búið að deila yfir 100 leyndarmálum

Búið að deila yfir 100 leyndarmálum
Nú er vetrarherferðin Share the Secret komin vel af stað og birtingar á hefðbundnum auglýsingum hafnar á erlendum mörkuðum. Yfir 100 leyndarmálum hefur verið deilt á vef Inspired by Iceland bæði í formi myndbanda sem texta og hvetjum við ykkur til þess að kynna ykkur þau og deila þeim áfram á ykkur samfélagsmiðlum.

Nú er vetrarherferðin Share the Secret komin vel af stað og birtingar á hefðbundnum auglýsingum hafnar á erlendum mörkuðum.

Yfir 100 leyndarmálum hefur verið deilt á vef Inspired by Iceland bæði í formi myndbanda sem texta og hvetjum við ykkur til þess að kynna ykkur þau og deila þeim áfram á ykkur samfélagsmiðlum.  Einnig hvetjum við ykkur til þess að taka þátt og deila ykkar leyndarmálum í gegnum vefsíðuna.

Á vinnusvæði Ísland – allt árið er hægt að kynna sér frekari upplýsingar um framvindu vetrarherferðarinnar ásamt því að skoða sýnishorn af þeim auglýsingum sem eru í birtingum á erlendum mörkuðum.

Skoða leyndarmál

Nánari upplýsingar veita Guðrún Birna Jörgensen, gudrunbirna@islandsstofa.is og Daði Guðjónsson, dadi@islandsstofa.is  

Deila