Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
10. desember 2014

Ferðasýningar og vinnustofur framundan

Ferðasýningar og vinnustofur framundan
Íslandsstofa tekur þátt í ýmsum ferðaviðburðum fyrir Íslands hönd á komandi mánuðum. Má þar nefna ferðasýningarnar MATKA í Helsinki, FITUR í Madrid og ITB í Berlín.

Íslandsstofa tekur þátt í ýmsum ferðaviðburðum fyrir Íslands hönd á komandi mánuðum. Í janúar verður farið á ferðasýningarnar Vakantibeurs í Utrecht í Hollandi, sem stendur yfir í sex daga, og MATKA í Helsinki. Um mánaðarmótin janúar/febrúar er stefnan tekin á árlegu sýninguna FITUR í Madrid, sem er stærsta ferðasýningin á spænska markaðinum en hana sækja að jafnaði yfir 200 þúsund gestir. Í mars er komið að ITB í Berlín, einni stærstu sýningu sinnar tegundar í heiminum, og TUR ferðasýningunni í Gautaborg. Þá tekur Ísland í fyrsta sinn þátt á MITT ferðasýningunni í Moskvu, en gaman er að segja frá því að þegar hafa sex íslensk fyrirtæki skráð sig þar til leiks.

Jafnframt sækir Íslandsstofa vinnustofur víða um heim þessa fyrstu mánuði ársins, allt frá Skandinavíu, Sviss og Írlandi til Austur-Evrópu og Kína, þar sem íslenskum aðilum í ferðaþjónustu gefst tækifæri til að hitta ferðasöluaðila á hverjum markaði fyrir sig.

Sjá yfirlit yfir ferðaviðburði árið 2015

 

Deila