Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
5. september 2017

Ferðasýningin ITB 2018 í Berlín - skráning

Ferðasýningin ITB 2018 í Berlín - skráning
Íslandsstofa tekur þátt í ferðasýningunni ITB sem haldin verður dagana 7.- 11. mars 2018. Sýningin er haldin árlega og er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Á síðasta ári sóttu hana um 160 þúsund manns, þar af um 109 þúsund fagaðilar.

Á ITB býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta­samböndum. Sýningin er tvískipt; fyrri hluti hennar, 7.-9. mars er eingöngu fyrir fagfólk en dagana 10. og 11. mars er hún einnig opin almenningi.

Ísland verður eins og síðustu ár með aðstöðu í höll 18 á sameiginlegu sýningarsvæði Norðurlandanna. Norðurlöndin skiptast á með sýningarbásana á sameiginlega sýningarsvæðinu og á ITB 2018 verður Ísland með bás sem snýr að gangi á tvo vegu. Pláss á sýningarbásnum er takmarkað og eru áhugasamir því hvattir til að skrá sig hið fyrsta.

Skráningareyðublað með upplýsingum um þátttökukostnað er að finna hér að neðan. Þeir aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni á sýningarbás Íslandsstofu eru vinsamlegast beðnir að senda meðfylgjandi eyðublað útfyllt á netfangið sigridur@islandsstofa.is fyrir 14. september nk.

Deila