Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
7. mars 2018

Forsetahjónin bjóða heiminum að ganga til liðs við #TeamIceland

Forsetahjónin bjóða heiminum að ganga til liðs við #TeamIceland
Guðni Th. Jóhannesson, forseti og Eliza Reid, forsetafrú bjóða heiminum að taka þátt í HM-ævintýri Íslendinga í nýju myndbandi frá Inspired by Iceland. Forsetahjónin hvetja fólk til að ganga til liðs við „Team Iceland“ og upplifa gleðina frá fyrstu hendi og kynnast landinu betur.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti og Eliza Reid, forsetafrú bjóða heiminum að taka þátt í HM-ævintýri Íslendinga í nýju myndbandi frá Inspired by Iceland. Forsetahjónin hvetja fólk til að ganga til liðs við „Team Iceland“ og upplifa gleðina frá fyrstu hendi og kynnast landinu betur.

„Taktu þátt í gleðinni, allir eru velkomnir. Sama hvaða lið þú styður og hvaðan þú ert, þá er pláss fyrir þig í okkar liði,“ segir Eliza í myndbandinu. „Hvort sem við vinnum eða töpum, þá er alltaf spennandi að vera hluti af einhverju stóru, jafnvel þegar þú ert smár,“ segir Guðni í myndbandinu.

Öllum gefst kostur á að vera með í „Team Iceland“ og taka virkan þátt í eftirvæntingunni og gleðinni með þjóðinni og jafnframt kynna sér það sem landið hefur fram að færa. „Við hvetjum alla Íslendinga til að ganga til liðs við „Team Iceland“, nota #TeamIceland myllumerkið og deila myndbandinu með vinum og vandamönnum, bæði heima og erlendis,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu.

Hægt er að ganga til liðs við „Team Iceland“ á síðunni www.teamiceland.com. Við skráningu fær til dæmis hver stuðningsmaður rafræna leikmannatreyju með einstöku númeri og íslenskri útgáfu af eftirnafni viðkomandi þar sem hann er kenndur við eiginnafn föður eða móður með viðskeytinu -son eða -dóttir til að deila á samfélagsmiðlum. Einnig verður hægt að vinna ferð til Íslands. Þetta er fyrsti áfangi í markaðsherferðinni á árinu.

Kastljósið beinist að Íslandi

Árangur íslenska landsliðsins á EM í Frakklandi 2016 vakti heimsathygli og jókst áhuginn á landinu mikið. Það er viðbúið að áhuginn á Íslandi vegna HM verði jafnvel enn meiri en fyrir tveimur árum. Því var ákveðið að ráðast í markaðsverkefni fyrir íslenskt atvinnulíf með það markmið að auka vitund um Ísland sem góðan stað til að heimsækja, sem upprunaland gæða í matvælum, vörum og framleiðslu og tilvalinn stað fyrir fjárfestingar og viðskipti. Þetta er samstarfsverkefni fyrirtækja og stjórnvalda og er unnið er unnið í góðri samvinnu við KSÍ.

“Við finnum daglega fyrir því, bæði hérlendis og erlendis, hversu mikils stuðnings íslenska landsliðið nýtur í aðdraganda keppninnar. Þegar Íslandsstofa leitaði til okkar þá leist okkur strax vel á hugmyndina og það verður gaman að sjá árangurinn af herferðinni. Við erum öll saman í liði,” segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins sem er unnið undir merkjum Inspired by Iceland og er Team Iceland og boð forsetahjóna fyrsti áfangi í markaðsherferðinni á árinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, siggadogg@islandsstofa.is eða í s. 694 4644

Deila