Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
23. október 2016

Gull og silfur fyrir kalda borðið

Gull og silfur fyrir kalda borðið
“Þetta er frábær árangur hjá liðinu. Í Kokkalandsliðinu er ungt fólk sem hefur náð vel saman í mjög ströngu ferli og hefur verið að leggja gríðarlega mikið á sig í undirbúningnum,” segir Þráinn Freyr Vigfússon þjálfari Kokkalandsliðsins sem keppir á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Þýskalandi.

Kokkalandsliðið, sem keppir þessa dagana á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Þýskalandi, fékk gull og silfur fyrir kalda borðið sitt. Liðið hlaut gullverðlaun fyrir eftirrétti (pastry) og silfur fyrir aðra rétti. 

“Þetta er frábær árangur hjá liðinu. Við höfum lagt nótt við dag að gera borðið einstakt. Síðustu 18 mánuði höfum við æft stíft fyrir keppnina og það er að skila sér með þessum árangri. Gull í eftirréttum er virkilega ánægjulegt. Í Kokkalandsliðinu er ungt fólk sem hefur náð vel saman í mjög ströngu ferli og hefur verið að leggja gríðarlega mikið á sig í undirbúningnum,” segir Þráinn Freyr Vigfússon þjálfari Kokkalandsliðsins.

Á miðvikudag ræðst síðan í hvaða sæti Ísland lendir í heildina þegar allar þjóðirnar hafa lokið keppni.

Facebook síða liðsins

Vefurinn kokkalandslidid.is

Instagram: @icelandicculinaryteam 

Deila