Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
29. ágúst 2013

Hagsmunir ferðaþjónustunnar og vetrarherferð Ísland - allt árið

Hagsmunir ferðaþjónustunnar og vetrarherferð Ísland - allt árið
Í september verða haldnir fundir þar sem hagsmunaðilar í ferðaþjónustu koma saman til skrafs og ráðagerða og fjalla um brennandi mál í ferðaþjónustu. Á fundunum ætlar Íslandsstofa kynna áherslur í markaðssetningu erlendis og markaðsverkefnið Ísland- allt árið á komandi vetri og Samtök ferðaþjónustunnar mun fara yfir helstu hagsmunamál greinarinnar.

Í september verða haldnir fundir þar sem hagsmunaðilar í ferðaþjónustu koma saman til skrafs og ráðagerða og fjalla um brennandi mál í ferðaþjónustu. Á fundunum ætlar Íslandsstofa kynna áherslur í markaðssetningu erlendis og markaðsverkefnið Ísland- allt árið á komandi vetri og Samtök ferðaþjónustunnar mun fara yfir helstu hagsmunamál greinarinnar. Fundirnir eru öllum opnir, og eru sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á erlendri markaðssetningu og hagsmunamálum ferðaþjónustunnar.

Skráning á fundina fer fram hjá viðkomandi markaðsstofu landshlutanna. Einnig er ráðgerður fundur í Reykjavík 11. september í Hörpu. Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Fundirnir verða sem hér segir:
Staður Staðsetning Dags.   Tími
Akureyri Hof 12. sept   11:30-13.00
Blönduós Potturinn 12. sept   15.30-17.00
Ísafjörður Hótel Ísafjörður 13. sept  12.00-13.30
Egilsstaðir Hótel Hérað 16. sept 09:30-11:00
Höfn Hótel Höfn 16. sept 17.00-18.30
Kirkjubæjarklaustur Hótel Laki 17. sept 12.00-13.30
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Hótel Hekla 17. sept  17.00–18.30
Borgarnes Hótel Hamar 18. sept 10.00-11.30
Grundarfjörður Hótel Framnes 18. sept 14.00-15.30

 

Deila