Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
18. nóvember 2017

Hlaut þrenn verðlaun á Stevie Awards fyrir konur í viðskiptum

Hlaut þrenn verðlaun á Stevie Awards  fyrir konur í viðskiptum
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu hlaut í gærkvöldi þrenn verðlaun á Stevie Awards verðlaunaafhendingunni sem haldin var í New York

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu hlaut í gærkvöldi þrenn verðlaun á Stevie Awards verðlaunaafhendingunni sem haldin var í New York. Verðlaunin eru veitt konum sem hafa skarað fram úr í viðskiptum eða sem stjórnendur í atvinnulífi um allan heim og voru nú veitt í 14 sinn. Inga Hlín hlaut gullverðlaun sem frumkvöðull ársins, silfurverðlaun sem stjórnandi ársins, og silfur sem kona ársins í flokki stjórnvalda og stofnanna fyrir störf sín hjá Íslandsstofu síðustu ár.

„Ég er ótrúlega þakklát og glöð með þennan heiður en ég lít fyrst og fremst á þetta sem viðurkenningu á þeim árangri sem við höfum náð með samtakamætti allra þeirra sem koma að því að markaðssetja Ísland sem áfangastað. Undanfarin ár hafa fyrirtæki og hið opinbera unnið saman að því að kynna Ísland undir merkjum Inspired by Iceland sem er orðið þekkt og verðmætt vörumerki. Þessi samtakamáttur hefur skipt sköpum fyrir okkur Íslendinga við að byggja upp íslenska ferðaþjónustu og fanga athygli heimsins sem áfangastaður. Það er mikilvægt að við höfum í huga að við erum í gríðarlegri samkeppni við aðra áfangastaði í heiminum en höfum vakið athygli fyrir samstarf og samstöðu hér á landi í þessari verðmætustu útflutningsgrein þjóðarinnar og af því er ég afar stolt.“

Stevie Awards fyrir konur í viðskiptum, heiðra stjórnendur, frumkvöðla og atvinnurekendur á heimsvísu. Stevie verðlaunin eru talin vera ein af fremstu viðskiptaverðlaunum í heiminum. Yfir 1.500 tilnefningar bárust í ár frá 25 löndum. Um 170 stjórnendur víða um heim sátu í dómnefnd sem valdi úr tilnefningunum.

Deila