Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
16. janúar 2020

Hreinn, 2 og 3! - Yfirlýsing um orkuskipti í samgöngum

Hreinn, 2 og 3! - Yfirlýsing um orkuskipti í samgöngum
Grænvangur hefur í samvinnu við íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld hrint af stað verkefninu Hreinn, 2 og 3 sem miðar að því að fjölga hreinorkubílum á meðal íslenskra fyrirtækja. Markmiðið er að 40% bíla á Íslandi gangi fyrir hreinorku árið 2030.

Orkuskipti í vegasamgöngum eru eitt mikilvægasta úrlausnarefni Íslands í þágu loftslagsmála.

Árlega nemur losun frá vegasamgöngum um þriðjungi af þeirri losun sem er á beinni ábyrgð stjórnvalda eða um einni milljón tonna CO2 ígilda.

Stjórnvöld hafa sett sér markmið um kolefnishlutlaust Ísland 2040 og ljóst er að orkuskipti í samgöngum eru eitt brýnasta verkefnið á þeirri vegferð.

Íslensk fyrirtæki og stofnanir reka mörg hver stóra bílaflota og ráða því miklu um það hversu hratt orkuskiptin eiga sér stað.

Grænvangur hefur því í samstarfi við fjölmarga aðila ýtt úr vör verkefninu Hreinn, 2 og 3! 

Í verkefninu felst að nýskráning fólksbíla, sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti, verði lögð af fyrir árið 2023. Með því verður Ísland í forystu á heimsvísu hvað varðar notkun umhverfisvænna orkugjafa.

Skráðu þitt fyrirtæki í Hreinn, 2 og 3! og taktu þátt í frumkvæði íslensks atvinnulífs við orkuskipti í vegasamgöngum.

SKRÁ MITT FYRIRTÆKI


Nánari upplýsingar veitir Eggert Benedikt Guðmundssson, forstöðumaður Grænvangs, eggert@islandsstofa.is.

Deila