Inspired by Iceland býður til tónleika í tengslum við Iceland Airwaves
Inspired by Iceland mun bjóða til séstakrar tónleikaraðar á Ingólfstorgi í tengslum við Iceland Airwaves hátíðina (off-venue). Á tónleikaröðinni, sem nefnist Eldhús, Little House of Music, koma fram margt af vinsælasta tónlistarfólki landsins við óvenjulegar aðstæður.
Tónleikarnir munu fara fram í Eldhúsinu, sem er lítið hús sem áður hefur verið notað í landkynningu á vegum Inspired by Iceland. Húsið stendur á Ingólfstorgi og rúmar tvo tónleikagesti hverju sinni. Þar sem húsið er lítið verða flytjendur að bregðast við aðstæðum og spila órafmagnaðar útsetningar af lögum sínum, og í sumum tilfellum er ljóst að ekki er pláss fyrir alla hljómsveitarmeðlimi. Mikið verður um óhefðbundnar útsetningar á lögum
Tónleikunum verður streymt á netinu og verður hægt að fylgjast með þeim á vef Inspired by Iceland. Tónleikarnir verða einnig sýndir í beinni útsendingu á risaskjá við Ingólfstorg fyrir þá sem ekki fá pláss inn í húsinu.
Þá munu tónlistartímaritin Nöjesguiden í Svíþjóð, og Gaffa í Noregi streyma tónleikunum beint á vefjum sínum. Til stóð að bandaríska tónlistartímaritið Rolling Stone gerði slíkt hið sama, en fellibylurinn Sandy setti strik í reikninginn.
Dagskrá:
Miðvikudagur: 14.00 – Tilbury 15.00 – Ojba Rasta 16.00 – Dikta 17.00 – Hjálmar |
Fimmtudagur: 14.00 – Retro Stefsson 15.00 – Hermigervill 16.00 – Lay Low 17.00 – Pascal Pinon |
Föstudagur: 14.00 – Pétur Ben 15.00 – Prins Póló 16.00 – Snorri Helgason 17.00 – Ásgeir Trausti |
Laugardagur: 14.00 – Jónas Sig og Ritvélar 15.00 – Pollapönk 16.00 – Ólafur Arnalds 17.00 – Sóley |