Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
8. ágúst 2016

Ísland á saltfiskhátíð í Portúgal 17. - 21. ágúst

Ísland á saltfiskhátíð í Portúgal 17. - 21. ágúst

Saltfiskhátíðin í Ilhavo í Portúgal er sú stærsta sinnar tegundar þar í landi. Búist er við rúmlega 200.000 gestum á hátíðina þá fimm daga sem hún stendur yfir, frá 17.-21. ágúst nk. Íslandi hlotnast sá heiður að vera með á hátíðinni í ár og skipuleggur Íslandsstofa þátttökuna.

Hjá Íslandsstofu hefur verið í gangi markaðsverkefni frá árinu 2013 sem gengur út á að kynna saltaðar þorskafurðir á Spáni, Portúgal og Ítalíu undir slagorðinu „Prófaðu og deildu leyndarmáli íslenska þorsksins“ en 23 fyrirtæki eru þátttakendur í verkefninu. "Markmið þess verkefnis er að treysta stöðu saltaðra þorskafurða í Suður Evrópu og í Portúgal er það Lissabon og svæðið norður af borginni sem er áherslumarkaður fyrir íslenska saltfiskinn" segir Guðný Káradóttir, forstöðumaður sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar hjá Íslandsstofu. 

Vinabæjartengsl Ilhavo og Grindavíkur

Íslandi er boðin þátttaka í hátíðinni á grundvelli vinabæjartengsla Ilhavo og Grindavíkur. Auk kynningar á íslenskum saltfiski verður lögð áhersla á að kynna íslenska menningu og Ísland sem áfangastað ferðamanna.

Róbert Ragnarsson bæjarstjóri í Grindavík mun sækja hátíðina heim auk hafnarstjóra Grindavíkur, forseta bæjarstjórnar, formanns bæjarráðs og skólastjóra Fisktækniskólans.

Fjölbreytt dagskrá á þjóðardegi Íslands 19. ágúst

Auk sendinefndar frá Grindavík mun iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir, heimsækja hátíðina og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá á þjóðardeginum 19. ágúst ásamt Þórði Ægi Óskarssyni, sendiherra Íslands gagnvart Portúgal og fulltrúum fyrirtækja. 

Á dagskránni er m.a. fánahylling og tónlistarflutningur við litla rauða Eldhúsið, sem verður miðstöð kynningar á Íslandi á hátíðinni. Auk þess eru tónleikar með hljómsveitinni Ylju, heimsókn í háskólann í Aveiro og kynning á íslenskri matarmenningu og hráefnum. Viktor Örn Andrésson matreiðslumeistari, sem er fulltrúi Íslands í Bocus d‘Or matreiðslukeppninni 2017, mun elda saltfisk og humar og útbúa skyr-desert sem gestir hátíðarinnar geta fengið að gæða sér á og drukkið íslenskan bjór með. Hægt er að taka þátt í getraun og vinna ferð til Íslands, íslenskan saltfisk, svuntur með merkinu Bacalhau da Islândia, afurðir Bláa lónsins o.fl.  

Portúgalar stærstu neytendur á saltfiski í heiminum

Löng hefð er fyrir saltfiskviðskiptum milli Íslands og Portúgal. Portúgalar eru stærstu neytendur á saltfiski í heiminum per íbúa og er neysla á saltfiski stöðug allt árið en nær þó hápunkti um jólin. Portúgal er mjög mikilvægur markaður fyrir íslenskan saltfisk en frá árinu 2005 hefur útflutningur þangað verið á bilinu 8-12.000 tonn á ári, aðallega flattur blautverkaður saltfiskur og fullunninn í Portúgal. 

Á hátíðinni eiga saltfiskverkendur og veitingahús á svæðinu í samstarfi og bjóða upp á fjölbreytta rétti fyrir sanngjarnt verð. Fjölmargir þeirra bjóða upp á fisk frá Íslandi. 

Sjá nánar á vef hátíðarinnar,  Facebook síðu hátíðarinnar og á Facebook síðu Bacalhau da Islândia

Nánari upplýsingar um hátíðina veita Björgvin Þór Björgvinsson, bjorgvin@islandsstofa.is og Guðný Káradóttir, gudny@islandsstofa.is, í síma 511 4000.

Deila