Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
6. mars 2019

Ísland í sviðsljósinu í Bergen

Ísland í sviðsljósinu í Bergen
Íslenskur sjávarútvegur hefur verið áberandi á sjávarútvegsráðstefnunni North Atlantic Seafood Forum sem fer núna fram í 14. skipti í Bergen í Noregi.

Á ráðstefnunni í ár er Ísland gestaþjóð en þar kynna 21 íslenskt fyrirtæki sig sameiginlega undir yfirskriftinni „Inspired by Iceland”. Það eru Arion banki, Arnarlax, Curio, D-Tech, Hábrún, HB Grandi, Iceland Responsible Fisheries, Íslandsstofa, Marel, Matís, MSC á Ísland, Pólar toghlerar, Samskip, SFS, Skaginn 3X, Sæplast, Trackwell, VAKI, Valka, Viðskiptaþróun og Vísir.

Á fyrsta degi ráðstefnunnar fór meðal annars fram málstofa með erindum frá íslensku fyrirtækjunum undir þemanu „sjálfbærni, gæði og nýsköpun“ Mjög góð mæting var á íslensku málstofuna og mikill áhugi m.a. frá erlendum blaðamönnum sem vildu kynnast því sem Íslendingar eru að gera í sjávarútvegnum í dag.

Þá voru íslenskir fyrirlesarar einnig áberandi í aðaldagskrá ráðstefnunnar sem er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og tæplega þúsund manns sækja árlega. Eftir ávarp Ernu Solberg forsætisráðherra Noregs héldu bæði Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS og Guðmundur Kristjánsson forstjóri HB Granda erindi sem svo sannarlega vöktu slógu í gegn á stóra sviðinu í Bergen. Þá var Árni M. Mathiesen framkvæmdastjóri hjá FAO í Róm einnig með fyrirlestur.

Í lok aðaldagskrár ráðstefnunnar kynntu þau Stella Björg Kristinsdóttir og Kristján Þ. Davíðsson nýtt kynningarmynd sem ber yfirskriftina “Inspired by Iceland” og sýnir forystuhlutverk Íslands í alþjóðlegum sjávarútvegi, þar sem tækni og nýsköpun eru aðal drifkrafturinn. Að kvöldi 6. mars stendur íslenska sendinefndin fyrir kokteilboði í samstarfi við Sendiráð Íslands í Osló fyrir alla gesti ráðstefnunnar þar sem aðilum gefst færi á að efla tengslin og mynda ný. Ráðstefnunni lýkur 7. mars.


Deila