Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
2. apríl 2019

Ísland tekur þátt í gagnaverasýningu í Þýskalandi

Ísland tekur þátt í gagnaverasýningu í Þýskalandi
Átta íslensk fyrirtæki tóku þátt í gagnaverasýningunni Cloudfest sem fram fór í Þýskalandi dagana 23.-29. mars.

Cloudfest er ein stærsta gagnaverssýningin sem haldin er í Evrópu ár hvert. Íslandsstofa hefur haft veg og vanda af því að fara með innlenda hagaðila á Cloudfest. Var þetta í sjötta skiptið sem íslenskir fulltrúar sækja sýninguna, en Ísland var með stóran bás sem var vel sóttur. Íslenska fyrirtækið Etix Everywhere var með kynningu á stóra sviðinu þetta árið.


Deila