Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
2. október 2012

Ísland valið áfangastaður ársins í Evrópu af lesendum The Guardian

Ísland valið áfangastaður ársins í Evrópu af lesendum The Guardian

Ísland hefur verið valið land ársins í Evrópu 2012 í árlegu vali lesenda breska dagblaðsins The Guardian áhugaverðustu áfangastöðum heims, hinum svokölluðu Guardian Readers‘ Travel Awards.

Í umfjöllun um verðlaunin segir að Ísland hljóti verðlaunin í ár, en áhrifamiklar myndir af landinu í mótun í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli 2010 hafi vafalítið laðað að gesti. Þá segir jafnframt í umfjöllun blaðsins að lág glæpatíðni og vinsamlegt viðmót heimamanna geri landið að ákjósanlegum áfangastað.

Fulltrúi Íslandsstofu, sem annast erlent markaðsstarf til ferðamanna undir formerkjum Visit Iceland, tók við verðlaunum við hátíðlega athöfn í London um helgina.

 

Deila