Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
13. október 2016

Íslandsstofa leitar eftir starfsnema

Íslandsstofa leitar eftir starfsnema
Íslandsstofa auglýsir eftir starfsnema frá janúar fram í maí 2018. Um er að ræða 40% starfshlutfall sem hentar vel með námi.

Við erum að leita eftir starfsnema á svið ferðaþjónustu og skapandi greina. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starfsnám sem hentar vel með námi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Markmið starfsnámsins er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn og vill afla sér reynslu, færi á að kynnast því fjölbreytta starfi sem unnið er í alþjóðlegri markaðssetningu hjá Íslandsstofu.
Um er að ræða 40% starfshlutfall sem hentar vel með námi. (Frá janúar og fram í maí árið 2018).

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að vera í BS/BA- eða meistaranámi í grein sem tengist störfum Íslandsstofu á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina
  • Áhugi á fjölmiðlum, almannatengslum eða alþjóðlegri markaðssetningu æskilegur
  • Góð kunnátta í ensku og íslensku - önnur tungumálakunnátta er æskileg
  • Góð þekking á Íslandi
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð.

Upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Karen Möller Sívertsen, verkefnisstjóri, ferðaþjónustu og skapandi greina, karen@islandsstofa.is

Umsóknum skal skilað rafrænt á starfsnam.islandsstofa.is fyrir 10. nóvember 2017.

Deila