Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
13. september 2013

Íslensk matarmenning kynnt í Berlín

Íslensk matarmenning kynnt í Berlín
Íslenskt sjávarfang og lambakjöt voru í aðalhlutverki í fjölmennri matarveislu sem haldin var í húsakynnum þýsku verslunarkeðjunnar Frischeparadies í Berlín þann 1. september sl.

Íslenskt sjávarfang og lambakjöt voru í aðalhlutverki í fjölmennri matarveislu sem haldin var í húsakynnum þýsku verslunarkeðjunnar Frischeparadies í Berlín þann 1. september sl.

Veislan var liður í kynningarátaki Frischeparadies á ferskum íslenskum hágæða afurðum sem stendur yfir út septembermánuð. Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Berlín eru samstarfsaðilar Frischeparadies í þessari kynningu og er markmiðið að kynna íslenskt hráefni og vekja almenna athygli á Íslandi og íslenskri matarmenningu.

Boðið var upp á sjö rétta matseðil þar sem fimm réttir voru úr íslensku hráefni og eldaði Þráinn Freyr Vigfússon, núverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins árið 2007, einn þessara rétta. Hina réttina elduðu þekktir þýskir matreiðslumenn. Uppselt var í matarveisluna sem rúmaði 300 manns en þar var um að ræða bæði boðsgesti auk almennings.

Í verslunum Frischeparadies er boðið upp á hágæða hráefni þar sem megináherslan er á kældar og ferskar afurðir, mest sjávarfang og kjöt. Frischeparadies er einnig stór dreifingaraðili á ferskum og kældum afurðum til þýskra smásölukeðja. Fyrirtækið hefur um all nokkurt skeið valið ferskar sjávarafurðir frá Íslandi sökum hreinleika, gæða og ábyrgrar nýtingar á fiskistofnum hér við land. Keðjan er aðili að markaðsverkefninu Iceland Responsible Fisheries. Lambakjötið er nýjung í framboði þeirra og verða afurðir frá SAH á Blönduósi til sölu í verslunum þeirra í sjö borgum í Þýskalandi og í verslun þeirra í Vín í Austurríki næstu fjóra mánuði. Allt fiskmetið í veislunni (humar, bleikja og þorskur) kemur frá Iceland Seafood International en fyrirtækið er með söluskrifstofu í Hamborg.

Samhliða heimsókn sinni til Berlínar eldaði Þráinn Freyr íslenskan þorsk í matreiðslu­þættinum Berlin Kocht. Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnar Snorri Gunnarsson, var  Þráni til halds og trausts í útsendingunni og kynnti íslenskar matvörur fyrir þýskum matgæðingum en um 180 þúsund Berlínarbúar horfa vikulega á þáttinn. Þátturinn verður sýndur 4. október á Berlin TV.

Hér að neðan má sjá myndir frá viðburðinum

Deila