Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
27. maí 2019

Íslenska fiskinum hampað á kynningu í Þýskalandi

Íslenska fiskinum hampað á kynningu í Þýskalandi
Íslenskur fiskur var í aðalhlutverki á vinnustofu sem þýska fyrirtækið Transgourmet Seafood stóð fyrir á dögunum, í samstarfi við Iceland Responsible Fisheries (IRF) og Íslandsstofu.

Kynningin var tvíþætt, annars vegar fyrirlestrar og hins vegar sælkeraveisla þar sem íslenskur kokkur reiddi fram dýrindis fiskrétti úr íslensku hráefni.

Viðburðurinn fór fram í húsnæði Transgourmet Seafood í Bremerhaven en fyrirtækið, sem er stór dreifingaraðili á þýska markaðinum, er þátttakandi í IRF verkefninu. Gestir vinnustofunnar voru um 25 talsins, að stærstum hluta viðskiptavinir Transgourmet, hagsmunaðilar og aðrir sem selja íslenskan fisk í Þýskalandi. Á meðal þeirra sem sóttu viðburðinn voru fulltrúar frá fyrirtækjunum Fimex, Icefresh Deutschland og Marós sem eru í eigu Íslendinga og vinna með íslenskan fisk á þýska markaðnum.

Fulltrúar frá Transgourmet greindu frá reynslu sinni af Íslandi og íslenska fiskinum í máli og myndum en fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á að upprunatengja vörur sem keyptar eru frá Íslandi. Fleiri fyrirtæki á þýska markaðinum hafa í auknum mæli farið þessa leið, þ.e. að gera íslenskum uppruna hátt undir höfði, sem er mjög jákvæð þróun. Þá hélt fulltrúi frá Íslandsstofu tvær kynningar þar sem hann sagði m.a. frá IRF verkefninu, vottun, sjálfbærni og útflutningi á íslenskum fiski inn á Þýsklandsmarkað, auk almennrar landkynningar.

Að kynningum loknum fengu gestir að smakka fjölmarga sælkerarétti úr íslensku hráefni sem matreiðslumaðurinn Fannar Vernharðsson og landsliðskokkur til margra ára, töfraði fram við góðar undirtektar gesta. Matseðill Fannars var unninn í samstarfi við Transgourmet og var þar lögð áhersla á að blanda saman þjóðlegum íslenskum fiskréttum og öðrum nútímalegri. Fannar eldaði m.a. plokkfisk með íslensku rúgbrauði, saltfisk með hamsatólgi og kartöflumús, bleikjutarta, djúpsteiktar gellur, pönnusteiktan steinbít, kaldreykta bleikju, auk karfa- og þorskrétta.

Mikil ánægja ríkti með þetta framtak bæði af hálfu forsvarsmanna Transgourmet og gesta sem sóttu viðburðinn. Þú þegar hafa borist fyrirspurnir frá nokkrum aðilum sem vilja nota efni frá IRF og Iceland Responsible Fisheries upprunamerkið í kynningarstarfi sínu í þýskum smásöluverslunum.

Markaðsstarf á erlendum mörkuðum er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska fiskinn en það kostar líka sitt, og þá sérstaklega ef nálgast á neytendur. Með því að fara í samstarf við aðila sem eru þegar á markaðinum og vilja hampa íslenskum vörum er ýmislegt áunnið. Þetta hefur verið gert í þorskverkefninu í Suður-Evrópu og núna í auknum mæli í Þýskalandi. Með þessum hætti má komast í bein tengsl við neytendur og standa vonir til þess að hægt verði að koma slíku kynningarstarfi við á fleiri mörkuðum sem eru mikilvægir fyrir íslenskar fiskafurðir.


Deila