Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
21. mars 2019

Íslenski hesturinn kynntur í Þýskalandi

Íslenski hesturinn kynntur í Þýskalandi
Horses of Iceland tók þátt í hestasýningunni Equitana í Essen í Þýskalandi dagana 9.–17. mars.

Sýningin er haldin annað hvert ár og er sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Hana sækja að jafnaði um 200.000 manns og er þetta með stærstu verkefnum Horses of Iceland í ár.

Íslenski hesturinn var kynntur í stórum bási þar sem gestum var m.a. boðið að horfa á 360-gráðu myndband af hestinum úti í íslenskri náttúru með sýndarveruleikagleraugum og þannig ferðast til heimkynna hans. Þetta framtak vakti mikla hrifningu, en fæstir höfðu prufað slíkt áður. 

Samstarfsaðilar Horses of Iceland voru einnig kynntir í básnum og að auki sýndi Horses of Iceland auglýsingamyndband um íslenska hestinn á 90-metra skjá á sýningarsvæðinu. Nærri 700 manns skráðu sig á póstlista Horses of Iceland í von um að fá veglegan vinning: Flug með Icelandair, hestaferð með Trail of Hope (samstarfsaðila Horses of Iceland) í íslenskri náttúru og vikupassa á Landsmót 2020.

Þátttaka Horses of Iceland á Equitana hafði það að markmiði að höfða til þeirra sem umgangast hesta af öðru hrossakyni og vekja athygli þeirra á eiginleikum íslenska hestsins.

Formleg opnun miðasölu á Landsmót 2020

Laugardaginn 16. mars, var miðasala á Landsmót 2020 formlega opnuð í bási Horses of Iceland á Equitana með ávarpi frá Erlendi Árnasyni, formanni Gæðingadómarafélagsins. Boðið var upp á lifandi íslenska tónlist og kynningu á íslensku lambakjöti, sem er markaðsset undir vörumerkinu Vikingyr á Þýskalandsmarkaði.

Landsmót hestamanna mun fara fram á Hellu, 6.-12. júlí 2020. Um 700 knapar og 1.100 keppnishestar munu taka þátt, búist er við um 10.000 gestum og frábærri stemmningu. Sérstakt afsláttarverð var í boði út mars.


Deila