Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
24. nóvember 2015

Íslenski þorskurinn vinsæll á franska markaðnum

Íslenski þorskurinn vinsæll á franska markaðnum
Miðvikudaginn 18. nóvember sl. stóðu Íslandsstofa og Iceland Responsible Fisheries fyrir kynningarfundi um stöðu íslenskra sjávarafurða á Frakklandsmarkaði.

Miðvikudaginn 18. nóvember sl. stóðu Íslandsstofa og Iceland Responsible Fisheries fyrir kynningarfundi um stöðu íslenskra sjávarafurða á Frakklandsmarkaði. Fundurinn var haldinn á Grand hótel Reykjavík og mættu rúmlega 50 manns, ásamt 20 nemendum frá Háskólanum á Akureyri sem fylgdust með fundinum á netinu.

Björgvin Þór Björgvinsson, verkefnastjóri á matvælasviði Íslandsstofu, hélt erindi um þróun útflutnings íslenskra sjávarafurða til Frakklands síðustu ár. Í erindi hans kom m.a. fram að útflutningur á ferskum þorski til Frakklands hefur aukist mjög mikið á síðustu árum en árið 2014 var Frakkland langstærsti markaðurinn með 42% af útflutningsverðmætum ferskra þorskafurða.

Marie Christine Monfort, ráðgjafi í markaðssetningu sjávarafurða, var með kynningu á tækifærum Íslands til að ná fótfestu á verðmætari hluta franska markaðarins, einkum með þorskafurðir. Í erindi sínu fjallaði Marie Christine um stöðu íslenska þorsksins á franska markaðnum í samanburði við samkeppnislönd. Hún talaði um mikilvægi þess að draga fram sérstöðu íslenska þorsksins, einkum í ljósi mikillar samkeppni á markaðnum. Að hennar sögn felst ein helsta áskorunin fyrir seljendur íslenskra sjávarafurða í því að ná betur til almennings þar sem tengingin á milli þorsksins og Íslands er ekki alltaf skýr í augum franskra neytenda. Töluverð tækifæri eru fyrir íslenskan þorsk á veitingahúsamarkaðnum í Frakklandi og þá helst á meðaldýrum veitingastöðum þar sem algengt er að hafa þorsk á matseðlum.

Í lok fundar var opnað fyrir umræður og komu ólíkar og áhugaverðar spurningar úr sal.

Hér er má sjá upptöku frá fundinum

Hér má sjá glærur Björgvins

Hér má sjá glærur Marie Christine

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá fundinum

Deila