Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
20. október 2016

Kokkalandsliðið keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu

Kokkalandsliðið keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu
Dagana 22.-25. október keppa 40 þjóðir í Erfurt í Þýskalandi og hefur íslenska liðið stundað stífar æfingar sl. 18 mánuði. Liðið er í 5. sæti á heimslista kokkalandsliða eftir þátttöku í heimsmeistaramóti í fyrra.

Kokkalandslið Íslands keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu í  í Erfurt í Þýskalandi 22.-25. október og fylgir eftir framúrskarandi árangri sínum frá síðasta Heimsmeistaramóti sem skilaði liðinu í 5. sæti á heimslista. Liðið er í toppformi en æfingar hafa staðið yfir í 18 mánuði. Íslandsstofa er einn af bakhjörlum Kokkalandsliðsins og hefur átt gott samstarf við liðið í kynningu á íslensku hráefni og matarmenningu í fjölbreyttum verkefnum á erlendum vettvangi. 

Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, eru haldnir á fjögurra ára fresti. Lið frá um 40 þjóðum keppa á leikunum, um 2.000 af færustu kokkum heims, sem keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Íslenska kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Culinary Art Table eru sýndir yfir 30 réttir sem tekur rúmlega tvo sólarhringa að útbúa. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.

Liðið notar íslenskt hráefni í réttina, m.a. ýsu, humar, skyr, nautahryggvöðva og íslenskt grænmeti.

Kokkalandsliðið skipa:

  1. Þráinn Freyr Vigfússon, sjálfstætt starfandi, faglegur framkvæmdastjóri.
  2. Bjarni Siguróli Jakobsson, Canopy hótel, fyrirliði.
  3. Jóhannes Steinn Jóhannesson, Canopy hótel, liðsstjóri.
  4. Steinn Óskar Sigurðsson, Vodafone, liðsstjóri.
  5. Hafliði Halldórsson, sjálfstætt starfandi, framkvæmdastjóri.
  6. Björn Bragi Bragason, Síminn, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
  7. Ylfa Helgadóttir, Kopar.
  8. Stefán Viðarsson, Icelandair Hotels
  9. Hrafnkell Sigríðarson, Ion Hótel.
  10. Hafsteinn Ólafsson, Ion Hótel.
  11. Atli Þór Erlendsson, Grillið Hótel Saga.
  12. Sigurður Ágústsson, Tryggvaskáli.
  13. Axel Björn Clausen, Fiskmarkaðurinn.
  14. Garðar Kári Garðarsson, Strikið.
  15. Georg Arnar Halldórsson, Kolabrautin.
  16. María Shramko, sjálfstætt starfandi.
  17. Fannar Vernharðsson, Vox.

Facebook síða liðsins

Vefurinn kokkalandslidid.is

Instagram: @icelandicculinaryteam 

Deila