Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
10. desember 2015

Kortlagning fyrirtækja á sviði áliðnaðar

Kortlagning fyrirtækja á sviði áliðnaðar
Íslandsstofa, Álklasinn og Samál vinna nú að samstarfsverkefni sem felst í því að kortleggja þau fyrirtæki sem starfa á sviði áliðnaðar.
Á myndinni frá vinstri: Pétur Blöndal frá Samál, Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir klasastjóri Álklasans, Hallveig Höskuldsdóttir verkefnisstjóri kortlagningarverkefnis og Andri Marteinsson frá Íslandsstofu. 

 

Íslandsstofa, Álklasinn og Samál vinna nú að samstarfsverkefni sem felst í því að kortleggja þau fyrirtæki sem starfa á sviði áliðnaðar. Íslandsstofa hefur á undanförnum misserum unnið sambærilegar úttektir á öðrum atvinnugreinum sem reynst hafa góður grunnur til að þjónusta fyrirtækin betur. 

Markmið verkefnisins er að greina stöðu fyrirtækja sem starfa á sviði áliðnaðar á Íslandi í dag og fá yfirsýn yfir hindranir, möguleg samstarfsverkefni og þau sóknarfæri sem eru í sjónmáli fyrir útflutning. Verkefnisstjóri er Hallveig Höskuldsdóttir. Hallveig hefur unnið um árabil hjá áliðnaðinum og þekkir því starfsgreinina vel.

Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Andri Marteinsson hjá Íslandsstofu, andri@islandsstofa.is

 

Deila