Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
15. mars 2012

Markaðs- og söluþjálfun fyrir sjávarútvegsfyrirtæki hafin á ný

Fyrsta vinnustofan í markaðs- og söluþjálfun fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fór fram nú í vikunni.

Mikil aðsókn var á námskeiðið og var því ákveðið að keyra tvo hópa samhliða. Á fyrstu vinnustofunni hjá hópunum tveimur var fjallað um samningatækni og menningarmun undir leiðsögn Vlad Vaiman, prófessors í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Þetta er í annað sinn sem boðið er upp á námskeiðið í heild sem miðar að því að styrkja og aðstoða sölumenn sjávarútvegsfyrirtækja við að markaðssetja og selja vöru sína á erlendum mörkuðum. Námskeiðið stendur yfir í fjóra mánuði og verður ein vinnustofa í mánuði.

Næsta vinnustofa fer fram 28. mars en þar verður sjónum beint að sölu og þjónustu á erlendum mörkuðum.

Nánari upplýsingar um námskeiðið veita Björn H Reynisson verkefnisstjóri, bjorn@islandsstofa.is og
Hermann Ottósson, forstöðumaður markaðsþróunar, hermann@islandsstofa.is

 

Deila