Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
7. febrúar 2013

Markaðsátak í Suður Evrópu

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 20 milljónum króna í sameiginlegt markaðsátak fyrir íslenskar saltfiskafurðir á árinu 2013. Það eru Íslandsstofa og Íslenskir saltfiskframleiðendur (ÍSF) sem höfðu frumkvæði að mótun markaðssamstarfs til kynningar á söltuðum þorskafurðum í Suður Evrópu. Um er að ræða markaðssamstarf sem nýtist heildarhagsmunum útflytjenda til kynningar á íslenskum afurðum, þar sem lögð er áhersla á íslenskan uppruna saltfisks sem og gæði og ferskleika, og mun tengingin við Ísland skapa athygli sem ella hefði ekki náðst. Ávinningur af þessu markaðssamstarfi felst því í meiri slagkrafti í kynningu og samhæfingu aðila á markaði í harðnandi samkeppni.

Framlag ríkisstjórnarinnar miðast við að jafnhátt eða hærra framlag renni til átaksins frá öðrum samstarfsaðilum, fyrirtækjum í greininni eða öðrum þeim sem kunna að ganga til liðs við verkefnið, en það er opið öllum þeim sem framleiða eða flytja út afurðir á þetta markaðssvæði.

Íslenskar saltfiskafurðir og hertur fiskur voru árið 2011 um 14% af útflutningsverðmæti sjávarfangs eða um 35 milljarðar króna og skilaði blautverkaður saltfiskur einn og sér 17,4 milljörðum króna. Markaðir í Suður Evrópu hafa verið að dragast saman að undanförnu vegna erfiðs efnahagsástands og harðnandi samkeppni. Í þessu markaðsátaki fyrir sjávarafurðir verður lögð áhersla á mikilvægustu markaðslöndin á þessu svæði eða Spán, Portúgal og Ítalíu. Íslandsstofa sér um framkvæmd og fjárhag verkefnisins.

Markmiðið er að efla samkeppnisstöðu íslenskra saltfiskafurða og auka verðmætasköpun með því að:

  • byggja upp orðspor og ímynd íslenskra saltfiskafurða sem úrvals afurða með því að vekja athygli á íslenskum uppruna og sérstöðu sem tengist gæðum og hreinleika,
  • treysta tengsl við lykilhagsmunaaðila, innkaupa- og dreifingaraðila með fræðslu og kynningum,
  • skapa áhuga kaupenda á íslenskum fiski og festa í sessi nýja neytendur.

Markaðsátakið mun byggja á þeirri meginstefnu sem mörkuð hefur verið í kynningarstarfi í sameiginlegu markaðsstarfi fyrir íslenskar sjávarafurðir hjá Íslandsstofu í gegnum Iceland Responsible Fisheries, kynningu á Íslandi á erlendum mörkuðum og íslenskum uppruna. Áhersla er lögð á að kynna gæði og ferskleika afurða sem eiga uppruna í hreinu hafsvæði þar sem stundaðar eru ábyrgar fiskveiðar. Þekking, reynsla og aðferðafræði sem byggð hefur verið upp í öðrum verkefnum, s.s. Ísland - allt árið, verður nýtt í markaðsstarfinu og lögð áhersla á samhæfingu við annað kynningarstarf Íslandsstofu, til framdráttar þessu verkefni.

Kynningarfundur 14. febrúar kl. 11

Hagsmunaaðilar eru boðaðir til  kynningarfundar fimmtudaginn 14. febrúar kl. 11 í Borgartúni 35, 6. hæð. Fundinum verður einnig aðgengilegur í gegnum tengil á vefnum og er áhugasömum bent á að senda póst á gudny@islandsstofa.is til að fá nánari upplýsingar.

Framleiðendum og útflytjendum á fiski til Spánar, Ítalíu og Portúgal býðst að taka þátt í þessu sameiginlega markaðsstarfi og verður þátttökufyrirkomulagið kynnt á fundinum.

Þeir sem kynna verkefnið á fundinum eru Skjöldur Pálmason formaður Íslenskra saltfiskframleiðenda (ÍSF), Gunnar Tómasson formaður verkefnisstjórnar, Guðný Káradóttir hjá Íslandsstofu og fulltrúi frá ráðuneyti.

Nánari upplýsingar um verkefnið veita:

Íslandsstofa - Guðný Káradóttir, gudny@islandsstofa.is, sími 511 4000
Félag íslenskra saltfiskframleiðenda - Guðbergur Rúnarsson, gudbergur@sf.is, sími 591 0360

Deila