Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
1. september 2021

Matvæli framtíðarinnar - bein útsending

Matvæli framtíðarinnar - bein útsending
Á aðeins einni klukkustund fá áhorfendur greinargóða mynd af nýsköpun í löndunum tveimur og því hvernig matvælaframleiðsla mun fara fram í framtíðinni.

Hvernig á að fæða 10 milljarða manna? Það er stóra spurningin sem jarðarbúar verða að finna svar við með ört vaxandi fólksfjölda í heiminum. Stjórnendur og frumkvöðlar frá Íslandi og Singapúr leiða saman hesta sína í Hörpu á fimmtudaginn kl. 9-10 á fundi Íslandsstofu og utanríkisráðuneytisins. Þar verður varpað ljósi á leiðir til að leysa þetta mikilvæga verkefni.

Ljóst er að nýsköpun og líftækni leika lykilhlutverk í matvælaframleiðslu framtíðarinnar. Hægt er að horfa á beina útsendingu hér á vef Íslandsstofu. Fundurinn fer fram á ensku. 


Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, setur fundinn ásamt Lim Thuan Kuan, sem er nýr sendiherra Singapúr gagnvart Íslandi.

Þá flytja Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Dilys Boey, aðstoðarframkvæmdastjóri Enterprise Singapore (ESG) erindi auk fjölda fulltrúa úr atvinnulífi Íslands og Singapúr.

Á aðeins einni klukkustund fá áhorfendur greinargóða mynd af nýsköpun í löndunum tveimur og því hvernig matvælaframleiðsla mun fara fram í framtíðinni.

Þrátt fyrir að mun fleiri búi í Singapúr en á Íslandi, eða um sex milljónir manna, þá eiga löndin um margt sameiginlegt þrátt fyrir að vera í sitt hvorri heimsálfunni. Ísland er reyndar 143 sinnum stærra en Singapúr sem er ein af mestu viðskiptaborgum heims og umfangsmikil fjármálamiðstöð auk þess að vera með eina stærstu umskipunarhöfn heims.

Frá Íslandi fáum við m.a. að heyra sögur frá Controlant, Orf líftækni og Sjávarklasanum. Frá Singapúr heyrum við af starfsemi Marel þar í landi og af matvælaframleiðslu þar sem stofnfrumur koma við sögu svo fátt eitt sé nefnt.

Deila