Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
10. nóvember 2015

Menningarlandið 2015 - málþing um tölfræði menningar og skapandi greina

Menningarlandið 2015 - málþing um tölfræði menningar og skapandi greina
Mennta- og menningarmálaráðuneyti ásamt atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti standa fyrir málþingi um tölfræði menningar og skapandi greina 11. nóvember nk. Málþingið er skipulagt í samstarfi við Reykjavíkurborg, Samtök skapandi greina, Hagstofu Íslands, Listaháskóla Íslands og Íslandsstofu.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti ásamt atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti standa fyrir málþingi um tölfræði menningar og skapandi greina miðvikudaginn 11. nóvember kl. 11-15 í Gamla Bíói. Málþingið er skipulagt í samstarfi við Reykjavíkurborg, Samtök skapandi greina, Hagstofu Íslands, Listaháskóla Íslands og Íslandsstofu.

Aðalfyrirlesari málþingsins er Dr. Tom Fleming sem er einn fremsti ráðgjafi á sviði skapandi greina í Evrópu í dag. Einnig munu Böðvar Þórisson frá Hagstofu Íslands og Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir frá Rannsóknarmiðstöð skapandi greina flytja erindi. Um er að ræða þátttökumálþing þar sem þátttakendur munu taka fyrir spurningar tengdar tölfræði menningar og skapandi greina í sinni víðustu mynd. Gert er ráð fyrir um 150 þátttakendum og starfað verður í 14 hópum og þremur umferðum. Málþingið hefst á fyrirlestrum og hefjast störf vinnuhópa að loknum hádegisverði. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, mun opna málþingið.

Nánari upplýsingar veitir Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir verkefnastjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, sími 5459500.

Deila