Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
6. mars 2019

Metfjöldi fyrirtækja á stærstu ferðasýningu í heimi

Metfjöldi fyrirtækja á stærstu ferðasýningu í heimi
Ferðakaupstefnan ITB hófst í morgun í 53. sinn en hún er haldin árlega í byrjun mars í þýsku höfuðborginni Berlín. Alla jafna sækja kaupstefnuna um 170.000 gestir, þar af um 110.000 fagaðilar.

Metfjöldi íslenskra fyrirtækja er nú staddur í Berlín á ITB ferðasýningunni sem er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. ITB er jafnframt einn stærsti vettvangur ráðstefna, funda og fræðslu um þróun og nýjungar í ferðaþjónustu á heimsvísu.

Mikið líf og fjör var á Íslandsbásnum fyrsta sýningardaginn en það er Íslandsstofa sem annast skipulagningu Íslandsbássins á sameiginlegu norrænu sýningarsvæði ITB. Á Íslandsbásnum taka að þessu sinni 29 íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og þrjár markaðs­stofur landshluta þátt undir merkjum Inspired by Iceland. Aldrei hafa fleiri íslenskir aðilar tekið þátt á Íslandsbásnum og eru yfir 100 Íslendingar á svæðinu. Meðal sýnenda á íslenska básnum eru ferðaskrifstofur, hótel, flugfélag og afþreyingar­fyrirtæki. Unnið er að markmiðum í íslenskri ferðaþjónustu þar sem lögð er áhersla á að hvetja ferðamenn og erlenda ferðaheildsala til þess að kynna sér ferðaþjónustu um land allt, árið um kring með ábyrgð og öryggi að leiðarljósi. Allt markaðsstarf á vegum Íslandsstofu er unnið undir merkjum Inspired by Iceland. Bás Íslandsstofu er í sýningarhöll 18 og er númer hans 132C.

Íslenska forsetafrúin, frú Eliza Reid, heiðraði sýnendur og gesti Íslandsbássins með nærveru sinni á fyrsta degi ITB. Þá er íslenska forsetafrúin með inngangsávörp á ráðstefnum og fundum á vegum ráðstefnudeildar ITB og í sendiráði Íslands í Berlín. Forsetafrúin er sérlegur sendiherra ferðaþjónustu og markmiða sjálfbærrar þróunar hjá Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNWTO) en það hefur vakið töluverða athygli á þýska markaðinum og víðar.

Í tengslum við ITB bauð Íslandsstofa í samráði við íslenska sendiráðið í Berlín fulltrúum sérvalinna þýskra fjölmiðla til viðburðar í bústað sendiráðsins þar sem frú Eliza Reid var heiðursgestur. Á fjölmiðlaviðburðinum var farið yfir áherslur í markaðssetningu á íslenskri ferða­þjónustu og hvernig ábyrgð og öryggi hafa verið sett í forgrunn í öllum markaðs­aðgerðum Íslandsstofu og samstarfsaðila úr íslenskri ferðaþjónustu í markaðsverkefninu Inspired by Iceland. Þá fór jafnframt fram kynning á íslenskum matvælum fyrsta sýningardag ITB þar sem gestum íslenska sýningarbássins var boðið að smakka íslenskan mat. Með því var vakin athygli á hágæða íslensku hráefni úr hreinu umhverfi sem ferðamenn geta notið í Íslands­ferðinni og hvernig matur getur orðið hluti af upplifun ferðamanna.

Íslensku fyrirtækin sem eru á sýningunni eru: AD Travel, Arctic Nature Hotel, Arctic Trucks Experience, Elding, Glacier Journey, GoNorth, Gray Line Iceland, Guide to Iceland, Hey Iceland, Hótel Cabin, Hótel Klettur, Hótel Örk, Iceland Travel, Icelandair Hotels, Icelandic Mountain Guides, Island Pro Travel, Íshestar, Íslandshótel, Katla DMI, Keahótels, Landhótel, Mountaineers of Iceland, Prime Tours, Reykjavik Excursions, Reykjavík Sightseeing, Snæland Travel, Special Tours, Terra Nova, WOW air, TREX, Travel East Iceland, Visit Reykjavik, Visti North iceland.


Deila