Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
6. febrúar 2012

Mid Atlantic ferðasýningin mikilvægur vettvangur í sölu Íslandsferða

Íslandsstofa tók þátt í Mid Atlantik 2012 ferðasýningunni sem Icelandair stóð fyrir 2.-5. febrúar síðastliðinn. Sýningin í ár var sú tuttugasta í röðinni og hana sóttu um 400 kaupendur og seljendur frá Evrópu, Norðurlöndunum og Norður Ameríku. Fjöldi íslenskra fyrirtækja tóku þátt í sýningunni sem hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur milli seljenda og kaupenda á Íslandsferðum annars vegar og söluaðila áfangastaða í leiðakerfi Icelandair hins vegar.

Deila