Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
22. október 2018

Níu Íslendingar kynna Ísland frá A til Ö í herferð Inspired by Iceland

Níu Íslendingar kynna Ísland frá A til Ö í herferð Inspired by Iceland
„Ísland frá A til Ö“ kallast ný herferð Íslandsstofu sem framleidd er undir merkjum Inspired by Iceland. Herferðin nýtir íslenska stafrófið sem leiðarvísi til að kynna land og þjóð.

Leiðarvísirinn skiptist í þrennt: „journey“ sem kynnir Ísland sem áfangastað, „taste“ sem kynnir íslenskan mat og drykk, og „living“ sem kynnir íslenskt atvinnulíf og samfélag. Hvert þema var með 32 íslenskum orðum, eitt fyrir hvern staf í stafrófinu, sem er einskonar leiðarvísir fyrir land og þjóð. Journey: kynnir landið sem áfangastað, Taste: kynnir áfangastaðinn, íslenskan mat og drykk og Living: kynnir íslenskt atvinnulíf og samfélag. Áherslan var á eftirfarandi markaði: Bretland, Þýskaland, Frakkland, Norður- Ameríka og Norðurlöndin.  

Samhliða stafrófunum voru gerð níu myndbönd þar sem Íslendingar með mismunandi bakgrunn gefa innsýn í íslenskt atvinnulíf og samfélag gegnum sín störf og áhugamál. Eliza Reid, forsetafrú, talar um jafnrétti á Íslandi og af hverju Íslendingar mælast iðulega hátt á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims, göngugarpurinn Vilborg Arna Gissurardóttir gefur ráð um hvernig á að ferðast á ábyrgan hátt um íslenska náttúru, Ólafur Örn Ólafsson, matgæðingur, segir frá drykkjar- og matarmenningu á Íslandi, Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur, útskýrir norðurljósin, Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun, útskýrir hvernig jarðvarmaorka er nýtt á Íslandi, Ragnheiður H. Magnúsdóttir, verkfræðingur, fjallar um nýsköpun og upplýsingatækni, Georg Halldórsson, matreiðslumaður og kokkalandsliðsmaður, talar um íslenskt gæðahráefni, Svanur Gísli Þorkelsson, leiðsögumaður og aukaleikari í Game of Thrones, gefur ráð um ferðalög á Íslandi og Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Codland, talar um ábyrgar fiskveiðar.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu: „Það er ánægjulegt að sjá fyrirtæki frá ólíkum sviðum atvinnulífsins vera í samstarfi til að kynna Ísland erlendis undir sameiginlegum hatti. Við byggjum á góðri reynslu frá því við byrjuðum Team Iceland herferðina fyrr á árinu og nýtum slagkraftinn af því til markvissrar markaðssóknar.“

„Ísland frá A til Ö“ herferðin kemur í kjölfarið á „Team Iceland“ herferðinni fyrr á árinu sem sneri að þeirri miklu athygli sem fylgdi þátttöku Íslands á HM karla í knattspyrnu í Rússlandi í júní. Þá var ákveðið að ráðast í sameiginlegt markaðsverkefni fyrir íslenskar útflutningsgreinar og nýta til þess vörumerkið Inspired by Iceland. Þetta samstarf ólíkra greina heldur áfram í herferðinni „Ísland frá A til Ö“ sem fyrst var notað 2017 þegar áhersla var lögð á að kynna fjölbreytileika og aðdráttarafl mismunandi landshluta Íslands. Núna er kastljósinu beint að því að auka vitund um Ísland sem góðan stað til að heimsækja, sem upprunaland gæða í matvælum, vörum og framleiðslu og tilvalinn stað fyrir fjárfestingar og viðskipti.

Markaðsherferðin er unnin fyrir íslenskt atvinnulíf með það markmið að auka vitund um Ísland í þágu útflutningsgreina og fjárfestinga og er verkefnið unnið í samstarfi stjórnvalda og fyrirtækja. Helstu samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Icelandair, Bláa lónið, Landsvirkjun, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök iðnaðarins sem eru fulltrúar fjölmargra fyrirtækja. Íslandsstofa heldur utan um framkvæmd markaðsverkefnisins sem er unnið undir merkjum Inspired by Iceland.

Tenglar á myndbönd

Ísland frá A til Ö kynningarmyndband

Journey:
Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur
Vilborg Arna Gissurardóttir, göngugarpur
Svanur Gísli Þorkelsson, leiðsögumaður

Living:
Eliza Reid, forsetafrú
Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
Ragnheiður H. Magnúsdóttir, verkfræðingur

Taste:
Georg Halldórsson, matreiðslumaður
Ólafur Örn Ólafsson, matgæðingur 
Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri 

Nánari upplýsingar veitir: 
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu
Sími 511 4000 / Farsími 694 4644


 

Deila