Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
24. október 2017

Norrænn matur vekur áhuga á áfangastað ferðamanna

Norrænn matur vekur áhuga á áfangastað ferðamanna
Matur og matarmenning voru í forgrunni á norræna viðburðinum The Great Nordic Feast sem haldinn var í London 20.- 22.október. Uppselt var á alla viðburðina og gæddu um 1.200 manns sér á norrænum mat, m.a. þorski, bleikju og skyri frá Íslandi.

Matur og matarmenning voru í forgrunni á norræna viðburðinum The Great Nordic Feast sem haldinn var í London 20.- 22.október. Uppselt var á alla viðburði helgarinnar og gæddu um 1.200 manns sér á norrænum mat, m.a. þorski, bleikju og skyri frá Íslandi, ýmist af morgunverðarhlaðborði, í hádegisverð eða kvöldverð. 

Íslandsstofa tók þátt í að skipuleggja viðburðinn, sem fram fór í menningarmiðstöðinni Southbank Centre, í samstarfi við kynningarskrifstofur hinna Norðurlandanna. Markmiðið var vekja áhuga á Norðurlöndunum sem áfangastað ferðamanna. Fyrir utan þá gesti sem mættu á viðburðina, náði kynningin inn í fjölmiðla og á samfélagsmiðla sem mun skila aukinni athygli á Íslandi sem áfangastað sem býður upp á góða matarupplifun.

Ylfa Helgadóttir, kokkur á veitingastaðnum Kopar, og Ágúst Einþórsson, bakari í Brauð og co, tóku þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd. Ágúst bakaði brauð og flatkökur, sem bornar voru fram með hangikjöti. Allir norrænu kokkarnir unnu með breskum kokkum og var það Marianna Leivaditaki, kokkur á veitingastaðnum Morito í London, sem vann með íslenska hráefnið ásamt Ylfu. Hún kom hingað í byrjun september með blaðamanni dagblaðsins Metro, til að kynna sér íslenska matvælaframleiðslu og matarmenningu.

Viðburðurinn hófst með boði fyrir blaðamenn fimmtudaginn 19. október, en daginn eftir matreiddi íslenska teymið fyrir gesti, ásamt kokkum frá Svíþjóð og Færeyjum. Á laugardeginum elduðu kokkar frá Danmörku, Noregi og Grænlandi fyrir gestina og að lokum matreiddu kokkar frá Finnlandi og Álandseyjum á sunnudag. The Great Nordic Feast var haldin í stóru tjaldi, að hætti Sama, fyrir utan Southbank Centre við ána Thames. Eldstæði voru inni í tjaldinu og þar fór matreiðslan fram að hluta. Þar voru einnig skreytingar og píanóleikur í norrænum anda, sem hafði skemmtileg áhrif á upplifunina. Gestir voru fræddir um réttina sem bornir voru fram, hráefnið og ýmis atriði sem viðkoma matarmenningu landanna.

Mikil ánægja var með viðburðinn meðal gestanna og virðist gæðahráefni frá Norðurlöndunum og matarmenning þeirra falla vel í kramið hjá Bretum.

Deila