Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
8. júlí 2019

Ný áætlun um samstarf á sviði ferðaþjónustu á Norðurlöndum

Ný áætlun um samstarf á sviði ferðaþjónustu á Norðurlöndum
Norðurlönd hafa fengið nýja samstarfsáætlun á sviði ferðaþjónustu. Þar er áhersla meðal annars lögð á samstarf um stafvæðingu og nýsköpun til að efla samkeppnishæfni í geiranum, öfluga kynningu á Norðurlöndum á fjarlægum mörkuðum og aukið samstarf til að skapa góð rammaskilyrði fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu.

Norrænu atvinnumálaráðherrarnir samþykktu ferðaþjónustuáætlunina á árlegum fundi sínum sem fram fór þann 27. júní í Reykjavík. Gildistímabil samstarfsáætlunarinnar er 2019–2023.

Aðdragandi hinnar nýju áætlunar er að ferðaþjónusta er ört vaxandi atvinnugrein á Norðurlöndum. Vægi hennar fyrir hagkerfi og atvinnustig landanna verður stöðugt meira. Þessu fylgja einnig fjölmargar áskoranir, ekki síst fyrir umhverfið. Það hefur orðið til þess að samstarf á sviði ferðaþjónustu er nú forgangsmál á dagskrá norrænu atvinnumálaráðherranna.

Í nýju samstarfsáætluninni er lagt til að auka áherslu á stafræna væðingu og þróun svonefndra snjallra áfangastaða með nýskapandi lausnum, auk þess að auka skilvirkni í samstarfi um tölfræði og greiningar. Í áætluninni er einnig talað um að gera úttekt á reglum norrænu landanna með það fyrir augum að greina þau svið sem þróa má frekar. Auk þess er áhersla lögð á mikilvægi aukins samráðs milli áhrifafólks í samfélögum okkar og aðila ferðaþjónustunnar.

Einnig er tekið fram að aukið samstarf geti haft samlegðaráhrif á sviði sjálfbærni. Norrænir ráðherrar eru hvattir til að efna til forgangsverkefna í samstarfi um sjálfbæra ferðaþjónustu. Ein tillaga er að samin verði áætlun um sjálfbæra ferðaþjónustu þar sem skilgreind verði markmið og aðgerðir á völdum sviðum.

Samstarfið styðji við markmið landanna

Í samstarfsáætluninni segir einnig að miklir möguleikar felist í samræmdri markaðssetningu á fjarlægum mörkuðum, svo sem í Kína, þar sem margir líta á Norðurlönd sem eina heild fremur en aðskilin lönd.

„Norðurlönd eru óðum að auka aðdráttarafl sitt sem áfangastaður ferðamanna. Lönd okkar standa frammi fyrir mörgum sameiginlegum áskorunum og það þýðir að meira kerfisbundið norrænt samstarf á sviði ferðaþjónustu getur gagnast okkur mikið. Rauði þráðurinn þarf að vera að samstarfið styðji við markmið landanna sjálfra á sviði ferðaþjónustu,“ segir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem er formaður norrænu atvinnumálaráðherranna árið 2019.

Sjá nánar á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands


Deila