Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
13. október 2016

Ný stjórn Íslandsstofu skipuð

Ný stjórn Íslandsstofu skipuð
Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, hefur skipað nýja stjórn Íslandsstofu en hana skipa sjö einstaklingar sem valdir eru til þriggja ára í senn.

Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, hefur skipað nýja stjórn Íslandsstofu. Stjórnin er skipuð samkvæmt lögum til þriggja ára, en skipunartími fyrrverandi stjórnar rann út í ágúst síðastliðnum. Stjórnina skipa sjö einstaklingar, valdir til þriggja ára í senn. Utanríkisráðherra skipar fjóra stjórnarmenn eftir tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn eftir tilnefningu iðnaðarráðherra, einn eftir tilnefningu mennta- og menningarmálaráðherra og einn án tilnefningar. Utanríkisráðherra skipar formann stjórnar að höfðu samráði við aðra tilnefningaraðila.

Formaður stjórnar Íslandsstofu er Sigsteinn Páll Grétarsson, framkvæmdastjóri Arctic Green Energy Corporation (SA).

Aðrir í stjórn eru:

  • Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Gjögur hf. (SA)
  • Baldvin Jónsson, ráðgjafi (MMR)
  • Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair (SA)
  • Hrannar Pétursson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra (UTN)
  • Inga Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Kosmos & Kaos (ANR)
  • Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentor (SA) 

Áheyrnarfulltrúi utanríkisráðuneytisins er Júlíus Hafstein.

Í varastjórn eru:
Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Erla Ósk Pétursdóttir, gæða- og þróunarstjóri hjá Vísi hf., Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, Ingibjörg Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Radisson BLU Hótels Sögu, Ingibjörg Guðrún Guðjónsdóttir, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, Ríkharður Ibsen, framkvæmdastjóri Bláa demantsins og Unnur Orradóttir Ramette, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Deila