Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
15. október 2014

Nýr áfangi Share the Secret, vetrarherferð markaðsverkefnisins Ísland – allt árið, hafinn með nýju myndbandi

Nýr áfangi Share the Secret, vetrarherferð markaðsverkefnisins Ísland – allt árið, hafinn með nýju myndbandi
Nýr áfangi vetrarherferðar markaðsverkefnisins Ísland – allt árið er í dag formlega kynntur en verkefnið hófst með birtingu á nýju myndbandi á vef Youtube. Myndbandinu hefur verið vel tekið og hefur þegar fengið hátt í 300 þúsund spilanir.

Nýr áfangi vetrarherferðar markaðsverkefnisins Ísland – allt árið er í dag formlega kynntur en verkefnið hófst með birtingu á nýju myndbandi á vef Youtube. Gerð myndbandsins hefur þegar vakið mikla athygli en 100 þúsund aðdáendur Íslands settu saman ferðaáætlun fyrir einn heppinn ferðamann sem valinn úr hópi um 4500 umsækjenda síðastliðinn vetur.

Ferðamaðurinn heppni er Jennifer Asmundson, matreiðslumeistari frá Bandaríkjunum, en hún er af íslensku bergi brotin. Afi Jennifer fluttist ungur til Ameríku og hafði sagt henni sögur af landi og þjóð þegar hún var barn. Þetta var hennar fyrsta ferð til Íslands. „Þetta er ótrúlegt tækifæri,“ sagði Jennifer við komuna til landsins. „Afi minn var Íslendingur. Hann dó þegar ég var ung, áður en hann gat kennt mér neitt um tungumálið, eða íslenskar matarhefðir. Ég er mjög spennt að fræðast um Ísland, og læra um jarðhita og íslenskar matarvenjur og uppgötva leyndarmál Íslands frá fyrstu hendi.“

Myndbandið nefnist á ensku „The Ultimate Secret Tour“ og lýsir ferðalagi Jennifer um Ísland og þeim leyndardómum sem hún uppgötvaði hérlendis. Myndbandið er hluti af „Share the Secret“ herferð Ísland – allt árið sem upprunalega var sett af stað haustið 2013 undir formerkjum Inspired by Iceland. Herferðin byggir á því að nýta staðbundna þekkingu Íslendinga og hið glögga auga erlendra gesta til að benda á að Ísland búi yfir fjölda ýmis konar ævintýra um land allt til viðbótar við þau sem þegar eru hvað þekktust, og hafa ef til vill ekki enn komist á kortið hjá erlendum ferðamönnum.

Á ferðalaginu fékk Jennifer að upplifa ýmis ævintýri sem rúmlega 100.000 fararstjórar á samfélagsmiðlum Inspired by Iceland völdu fyrir hana. Má þar nefna hellaskoðun, jeppaferðir, listasöfn, sundlaugar, vélsleðaferðir á jöklum, sjósund, og mikilfengna fossa sem voru meðal viðfangsefna sem Jennifer fékk að upplifa, auk þess sem hún fékk að njóta íslenskrar matargerðar, sem henni sem matreiðslumeistara þótti með eindæmum góð. „Það er afar mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að halda áfram að skapa tækifæri til að draga úr þeirri árstíðarsveiflu sem hefur einkennt íslenska ferðaþjónustu, og nýta þannig innviði og mannauð með jafnari hætti yfir árið en nú er gert“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu. „Markaðsstarf okkar gengur út á það að kynna Ísland á erlendum mörkuðum sem ákjósanlegan áfangastað allan ársins hring með sérstakri áherslu á vetrartímann. Þannig styðjum við best við þá atvinnugrein sem aflar hvað mestra tekna fyrir þjóðarbúið.“

Hægt er að deila myndbandinu nú þegar og merkja myndir á samfélagsmiðlum með merkinu #IcelandSecret. Einnig er hægt að sækja meiri upplýsingar um ferðalagið á www.inspiredbyiceland.com


Inspired by Iceland - The Ultimate Secret Tour

Deila