Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
14. ágúst 2017

Rannsókn á útflutningskostnaði íslenskra fyrirtækja - býrð þú yfir reynslusögu?

Rannsókn á útflutningskostnaði íslenskra fyrirtækja - býrð þú yfir reynslusögu?
Íslandsstofa vinnur nú að rannsókn sem felst í að kanna hversu háum fjárhæðum útflytjendur tapa árlega vegna vanefnda og svika erlendra kaupenda og birgja.

Íslandsstofa vinnur nú að rannsókn sem felst í að kanna hversu háum fjárhæðum útflytjendur tapa árlega vegna vanefnda og svika erlendra kaupenda og birgja. Í framhaldinu er ætlunin að leggja fram tillögur að bættu verklagi út frá reynslusögum fyrirtækja í hinum ýmsu starfsgreinum. Er það gert til að lágmarka eða koma í veg fyrir að útflytjendur verði fyrir slíku tapi.
Þá er einnig ætlunin að skoða hversu háum fjárhæðum útflytjendur þurfa að verja árlega í banka- og millifærslukostnað innanlands og erlendis vegna útflutnings og finna verklag til að lækka þann kostnað. 
 
Tekin hafa verið viðtöl við fyrirtæki í útflutningi og reynslusögum safnað saman. Nú er verið að greina gögnin og vinna úr þeim. Niðurstöðurnar verða að því loknu kynntar þeim aðilum sem að verkefninu koma, auk þess sem skýrsla verkefnisins verður gerð aðgengileg á vefnum. 
 
Enn er tækifæri til að koma reynslusögum á framfæri og hvetjum við fyrirtæki sem búa yfir slíkum upplýsingum til að hafa samband við Ísak Kára Kárason verkefnisstjóra, isak@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.

Deila