Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
8. nóvember 2019

Reykjavík hlýtur gullverðlaun sem áfangastaður

Reykjavík hlýtur gullverðlaun sem áfangastaður
Reykjavík hlaut í gær gullverðlaun sem Destination 2020 á Travel News Market, stærstu ferðasýningu sem haldin er í Svíþjóð.

Gullverðlaunin voru veitt í flokknum “premium” fyrir helgarferð sem merkir að flestir premium ferðamenn segjast vilja ferðast til Reykjavíkur í helgarferð, eða alls 18.1%. Í öðru sæti var Róm og París í þriðja sæti.

Premium ferðamenn eru þeir sem vilja fyrst og fremst einstaka upplifun og eru tilbúnir að eyða meira til þess, samkvæmt skilgreiningu alþjóðlega markaðsrannsóknafyrirtækisins YouGov sem gerði könnunina. Einnig voru veitt verðlaun í flokknum Budgetresenär, þ.e. ferðamenn sem vilja ferðast á ódýran máta og flokknum Trygghet, ferðamenn sem kjósa öryggi s.s. pakkaferðir. Undirflokkar voru helgarferð, vikuferð og langferð.

Könnunin var lögð fyrir í september og voru rúmlega tvö þúsund Svíar í úrtakinu. Könnunin var gerð á vegum Travel News sem er stærsta fagtímarit Svíþjóðar á sviði ferðaþjónustu. Tilgangur könnunarinnar var að komast að því hvaða áfangastaðir eru vinsælastir í dag meðal sænskra ferðamanna.

Sendiráð Íslands í Svíþjóð tók þátt í sýningunni og kynnti land og þjóð fyrir áhugasömum aðilum úr ferðaþjónustunni.

 

Sjá tengil á frétt Travel News um verðlaunin.

 

Deila