Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
3. maí 2012

Samningatækni í ólíkum menningarheimum

Samningatækni í ólíkum menningarheimum
Fimmtudaginn 10. maí býður Íslandsstofa til fræðslufundar þar sem Vlad Vaiman, prófessor í alþjóðlegri stjórnun, lýsir árangursríkri tækni við samninga í ólíkum menningarheimum.

Fimmtudaginn 10. maí býður Íslandsstofa til fræðslufundar þar sem Vlad Vaiman, prófessor í alþjóðlegri stjórnun, lýsir árangursríkri tækni við samninga í ólíkum menningarheimum.

Meðal spurninganna sem leita á svara við á fundinum eru eftirfarandi:

  • Af hverju er mikilvægt að skilja sinn eigin menningarheim?
  • Hvernig tryggjum við árangursrík samskipti milli menningarheima?
  • Hvernig forðumst við vandamál í samskiptum og samningum milli ólíkra menningarheima?

Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9:00-10:30.

Vlad Vaiman er prófessor í alþjóðlegri stjórnun og forstöðumaður framhaldsnáms í viðskiptafræði við Háskóla Reykjavíkur. Hann er með doktorsgráðu í fjölmenningarstjórnun frá Háskólanum í St. Gallen í Sviss. Hann hefur starfað sem ráðgjafi hjá fyrirtækjum víðsvegar um heiminn, þar á meðal í Bandaríkjunum, Kanada, Sviss, Rússland og Austurríki. Vlad Vaiman er höfundur tveggja bóka og fjölda fræðigreina um mannauðsmál og stjórnun.

Nánari upplýsingar veita:

Björn H Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og 
Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is.

Deila