Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
1. apríl 2016

Samningur við samtök um söguferðaþjónustu

Samningur við samtök um söguferðaþjónustu
Íslandsstofa og Samtök um söguferðaþjónustu hafa skrifað undir samning um samstarfsverkefni á sviði söguferðaþjónustu.

Íslandsstofa og Samtök um söguferðaþjónustu hafa skrifað undir samning um samstarfsverkefni á sviði söguferðaþjónustu. Samningurinn hefur þann tilgang að nýta þá samlegð sem verður til í störfum Íslandsstofu og Samtaka um söguferðaþjónustu og ná þannig betri árangri af verkefnum.

Starfsmaður verkefnisins er Katarzyna Dygul. Hún hefur áður starfað hjá alþjóða ráðgjafafyrirtækinu Tendensor í Svíþjóð sem sérhæfir sig í mörkun áfangastaða ásamt því að starfa m.a. hjá Baltic Development Forum og Iceland Unlimited. Samstarfsverkefnið er tímabundið í 3 mánuði og mun starfsmaður samtakanna starfa á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina.

Rögnvaldur Guðmundsson, formaður samtakanna og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu skrifuðu undir samninginn sem tekur gildi 1. apríl.

Deila