Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
17. maí 2019

Sjálfbær og ábyrg ferðaþjónusta í forgrunni

Sjálfbær og ábyrg ferðaþjónusta í forgrunni
Sem áfangastaður ferðamanna er Ísland um margt öðruvísi en aðrir áfangastaðir í heiminum með tilliti til veðurfars, náttúru og innviða.

Íslensk ferðaþjónusta vill byggja á sjálfbærum grunni efnahagslegs, umhverfislegs og samfélagslegs jafnvægis. Náttúra Íslands er þar einn lykilþátturinn og segja má að hún sé viðkvæm allan ársins hring, allt landið um kring.

Íslandsstofa hefur með samstarfsaðilum lagt sérstaka áherslu á að hvetja ferðamenn til þess að ferðast um Ísland með ábyrgum hætti undanfarin ár. Þetta hefur meðal annars verið gert með því að kynna fyrir ferðamönnum Íslenska loforðið, „The Icelandic Pledge“ á vef Inspired by Iceland (www.inspiredbyiceland.com/icelandicpledge). Íslenska loforðið nær til átta atriða sem stuðla að ábyrgri ferðahegðun, svo sem að virða náttúruna og skilja við hana eins og komið var að henni, að keyra ekki utan vega, að koma sér ekki í hættulegar aðstæður til að taka myndir, að tjalda á viðeigandi tjaldsvæðum og að vera viðbúinn öllum veðrum á ferðalagi um Ísland.

Við teljum að með með því að vinna sameiginlega að því að hvetja ferðamenn og söluaðila Íslandsferða til þess að samþykkja þetta loforð getum við haft jákvæð áhrif á hegðun ferðamanna á Íslandi sem stuðlar að sjálfbærni til framtíðar.

Ísland var fyrsta landið til að bjóða gestum sínum að lofa því að ferðast um landið á ábyrgan og öruggan hátt og að ganga vel um náttúru landsins. Þetta hefur vakið athygli erlendis bæði á meðal fjölmiðla sem og annarra áfangastað með hliðsjón af sjálfbærni og stjórnunar áfangastaða en m.a. hafa Hawai, Palou og Nýja Sjáland tekið upp sambærilegt form.

Við viljum hvetja alla í ferðaþjónustunni, hvort sem þeir eru í sölu- og markaðsstarfi, móttöku ferðamanna, leiðsögumenn eða hafa á einhvern hátt snertingu við ferðamenn að minna á Icelandic Pledge loforðin. Það má gera með því að deila loforðinu (vefslóðinni) á samfélagslmiðlum og vefmiðlum, ásamt því að hafa loforðin sýnileg fyrir viðskiptavinum og gestum á heimasíðum og í öðrum samskiptum, eða með plakötum og borðspjöldum sem hægt er að nálgast hjá Íslandsstofu. Þá er einnig hnappur í mótttökusal á flugvellinum í Keflavík þar sem hægt er að hefja ferðina á því að samþykkja loforðin.

Við sjálf þurfum síðan öll að sýna ábyrgð í því hvað við sýnum á samfélagsmiðlum og hvernig við markaðssetjum og auglýsum áfangastaðinn. Það er ekki bara Íslandsstofu, heldur allra þeirra sem koma að því að gera auglýsingar og miðla á samfélagsmiðlum, eru í almannatengslum og eiga á einhvern hátt samskipti við ferðamenn á leið hingað, sem eru komnir hingað eða hafa áhuga á því að koma til Íslands. Þar má telja auglýsingastofur, ferðaþjónustufyrirtæki, leiðsögumenn, leigubílstjóra, verslunar- og veitingafólk og svo mætti lengi telja.

Tökum höndum saman og hvetjum til ábyrgrar ferðahegðunar – sem stuðlar að sjálfbærni áfangastaðarins til framtíðar.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður Áfangastaðarins hjá Íslandssofu.

Deila