Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
7. nóvember 2018

Sjávarútvegssýningin í Qingdao fer vel af stað

Sjávarútvegssýningin í Qingdao fer vel af stað
Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslenskra aðila í sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo sem fer fram dagana 7.- 9. nóvember í Qingdao í Austur-Kína.

Sex fyrirtæki kynna þar sjávarafurðir og eldisafurðir: Iceland Pelagic, VSV, Icelandic Asia, ÍslandsLax, Triton og Life Iceland. Auk þess fer fram kynning undir merkjum Iceland Responsible Fisheries á vottun og ábyrgum fiskveiðum Íslendinga.

Sýningin fer vel af stað og virðist sem fleiri gestir hafi komið fyrsta daginn en síðustu ár, að sögn Berglindar Steinsdórsdóttur sýningarstjóra hjá Íslandsstofu, en hún hefur umsjón með þátttöku íslensku fyrirtækjanna á sýningunni. „Þetta er í 23. sinn sem sýningin er haldin. Fjöldi sýnenda og gesta hefur meira en tvöfaldast á undanförnum árum og er sýningin stærsta sinnar tegundar í Asíu með yfir 29.000 gesti og um 1500 sýnendur. Sýningin er m.a. ætluð fyrirtækjum í vinnslu sjávarafurða, framleiðslu tækni- og tækjabúnaðar, sem og öðrum sem sinna þjónustu við sjávarútveginn.“  

Gestirnir sem koma á íslenska básinn eru að spyrja um alls kyns afurðir s.s. gullkarfa, grásleppu, hrogn, sæbjúgu, grálúðu og þorsk. Þá hafa fyrirtækin boðað fundi við viðskiptavini og er sýningin því einnig vettvangur til að treysta viðskiptatengsl.

Íslandsstofa vinnur náið með Sendiráði Íslands í Kína í að kynna hagsmuni Íslands í utanríkisviðskiptum og þar skipta sjávarafurðir miklu máli. Fulltrúi sendiráðsins flutti m.a. fyrirlestur á málþingi um sjálfbærni, „Sustainable Seafood Forum 2018“, sem haldið var samhliða sýningunni. Nokkur þjóðlönd fengu tækifæri á að kynna sig á ráðstefnunni og kynnti hann fiskveiðistefnu Íslands, stjórnun ábyrgra fiskveiða og vottun undir merkjum IRF.

Sjálfbærni og vitund neytenda um umhverfisvæna framleiðslu er stöðugt að aukast, að sögn Guðnýjar Káradóttur, forstöðumanns sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar hjá Íslandsstofu. „Við teljum því mikilvægt að koma boðskap okkar á framfæri í Kína í samstarfi við þá aðila sem eru að selja inn á markaðinn. Verið er að skoða leiðir til kynningarsamstarfs og mun stafrænt efni, video, uppskriftir og fróðleikur um hollustu skipta máli í kynningu í Kína. Vefverslun er í stöðugum vexti í Kína og fiskur er að vinna sér þar sess einnig og mikil tækifæri til kynningar. Þá vekur athygli að kínverjar eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir fisk sem þeir gefa ungum börnum í ljósi þess að um mjög hollan mat er að ræða“ segir Guðný.

Nánari upplýsingar um þátttöku Íslands á China Fisheries & Seafood Expo veita Berglind Steindórsdóttir, sýningarstjóri, berglind@islandsstofa.is og Guðný Káradóttir, forstöðumaður sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar, gudny@islandsstofa.is.

Sjá vef sýningarinnar 

Deila