Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
2. maí 2012

Skráning hafin á Birdfair

Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja í ferðatengdri þjónustu á þátttöku í sýningunni Birdfair sem fer fram í Rutland á Englandi 17.-19. ágúst nk. 

Þetta er í fjórða sinn sem Íslandsstofa skipuleggur þátttöku í þessari fjölsóttu og mikilvægu sýningu. Markmiðið með þátttöku Íslands á sýningunni er að kynna landið sem áfangastað til fuglaskoðunar. Rúmlega 20 þúsund manns sækja sýninguna heim á ári hverju og sýnendur sem eru um 300 talsins koma mjög víða að úr heiminum.

Tekið skal fram að íslenski sýningarbásinn er ekki stór. Því verður nauðsynlegt að takmarka fjölda sýnenda og er reiknað með því að velja þurfi úr hópi umsækjenda. 
Þátttökukostnaður fyrir hvert fyrirtæki er 45.000 kr.

Áhugasamir hafi samband við Berglindi Steindórsdóttur hjá Íslandsstofu, berglind@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.

Nánari upplýsingar er að finna á vef sýningarinnar.

Deila