Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
24. október 2014

Spennandi starfsnám hjá Íslandsstofu

Spennandi starfsnám hjá Íslandsstofu
Íslandsstofa auglýsir eftir starfsnema. Um er að ræða 5 mánaða tímabil frá janúar fram í maí 2015 í 40% starfsnámi sem hentar vel með námi.

Íslandsstofa auglýsir eftir starfsnema. Um er að ræða 5 mánaða tímabil frá janúar fram í maí 2015 í 40% starfsnámi sem hentar vel með námi.



Helstu verkefni og ábyrgð

Markmið starfsnámsins er að gefa fólki sem er að hefja starfsferil sinn og vill afla sér reynslu, færi á að kynnast því fjölbreytta starfi sem unnið er í alþjóðlegri markaðssetningu hjá Íslandsstofu.

Umsóknum skal skila inn rafrænt á islandsstofa@islandsstofa.is 
fyrir 13. nóvember 2014.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir, verkefnisstjóri, ferðaþjónusta og skapandi greinar, ragnheidur@islandsstofa.is

Hæfniskröfur

Umsækjandi þarf að vera í BS/BA eða meistaranámi í grein sem tengist störfum Íslandsstofu á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina. Reynsla af almannatengslum eða alþjóðlegri markaðssetningu er æskileg og góð þekking á Íslandi og íslenskum staðháttum. Krafa er um skipulögð og nákvæm vinnubrögð, sem og fyrirtaks námsferil og einkunnir.

Deila