Starfsnemi óskast á svið áfangastaðarins
Markmið starfsnámsins er að gefa ungu fólki færi á að afla sér reynslu og þekkingar á ferðamálum og kynnast því fjölbreytta starfi sem unnið er á sviði áfangastaðarins hjá Íslandsstofu.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal vera í háskólanámi sem tengist störfum Íslandsstofu á sviði áfangastaðarins
- Þekking á Íslandi og ferðaþjónustu
- Áhugi á fjölmiðlum, almannatengslum eða alþjóðlegri markaðssetningu
- Góð kunnátta í ensku og íslensku - önnur tungumálakunnátta æskileg
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Upplýsingar
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum alfred.is fyrir miðvikudaginn 13. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir María Björk Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri á sviði áfangastaðarins hjá Íslandsstofu, maria@islandsstofa.is