Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
2. júlí 2020

Umsjón vörumerkisins Icelandic til Íslandsstofu

Umsjón vörumerkisins Icelandic til Íslandsstofu
Íslandsstofa mun fara með umsjón með vörumerkjunum Icelandic og Icelandic Seafood frá og með 1. júlí í samræmi við ákvörðun sem tekin var þegar Framtakssjóður Íslands afhenti ríkissjóði vörumerkin árið 2018 til varðveislu og nýtingar í þágu íslensku þjóðarinnar.

Samkvæmt samkomulaginu mun Íslandsstofa hafa umsjón með vörumerkjunum, þar með talið ábyrgð á kynningu og umsjón með lögformlegri verndun vörumerkjanna. Samningar eru í gildi um notkun vörumerkisins fyrir íslenskar sjávarafurðir sem seldar eru af High Liner Foods í N-Ameríku og Ibérica og Iceland Seafood í Suður-Evrópu. Fjölmörg tækifæri eru til frekari nýtingar vörumerkjanna, en þau hafa sterka stöðu eftir áratuga markaðsstarf útflytjenda og seljenda á erlendum mörkuðum.

Samkomulag við dótturfélög Brims í Asíu um sölu undir merkjum ICELANDIC

Gengið hefur verið frá rammasamningi við íslensk dótturfélög Brims í Asíu sem starfa í Japan, Hong Kong og Kína. Þessi félög hafa gengið undir nafninu Icelandic og hyggjast nýta vörumerkin Icelandic við sölu og markaðssetningu hágæða sjávarafurða sem framleiddar verða úr íslensku hráefni í samstarfi við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. 

Samkomulag um sölu á fiskolíum í Bandaríkjunum.

Þá hefur einnig nýlega verið gengið frá samningi við dreifingaraðilann Greenwood Group í Bandaríkjunum um sölu á fiskolíum undir nafninu Icelandic Wild Fish Oil.  Salan á þeim er hafin á Amazon og dreifing er hafin til smásöluaðila. Framleiðandi olíanna er SagaNatura. Nánari útfærsla samstarfs aðila er háð undirritun endanlegs samnings.

Þorkell Sigurlaugsson stjórnarformaður Icelandic:

„Sterk vörumerki skipta vaxandi máli í alþjóðlegri markaðssetningu. Árangursríkir samningar um notkun Icelandic vörumerkisins hafa legið fyrir um árabil við High Liner Foods í Norður Ameríku. Iceland Seafood og Ibérica á Spáni og S-Evrópu nýta einnig vörumerkið. Vörumerkið hefur nýst vel á mörkuðum í Norður Ameríku og Suður Evrópu, en á þó enn talsvert inni. Sala á fiskolíu í neytendaumbúðum til verslana undir merkjum Icelandic og sala á sjávarfangi í Asíu undir merkjum ICELANDIC eru merk tímamót.

Íslandsstofa mun héðan í frá hafa umsjón með daglegum rekstri Icelandic og mun framvegis annast kynningu og formlega verndun vörumerkja félagsins á erlendum mörkuðum.  Það fellur vel að starfsemi Íslandsstofu að koma sterkt að kynningu á ICELANDIC vörumerkjunum fyrir hágæða íslenskt sjávarfang, enda er það liður í að auka verðmæti vara sem unnar eru úr íslenskum sjávarafurðum  og leggja áherslu á gæði og sjálfbærni sem einkennir íslenskan sjávarútveg. Á þessum tímamótum hefur Sara Lind Þrúðardóttur, framkvæmdastjóri Icelandic ákveðið að láta af störfum og vil ég þakka henni fyrir sérstaklega gott samstarf, en hún mun vera starfsmönnum Íslandsstofu til aðstoðar eftir þörfum á næstunni.“

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu:

„Það er spennandi verkefni fyrir okkur hjá Íslandsstofu að taka við vörumerkinu Icelandic sem á sér merkilega sögu. Við munum leggja okkur fram um að veita þeim fyrirtækjum sem þegar hafa gert samning um notkun, góða þjónustu. Eigandi vörumerkisins, íslenska ríkið, hefur lagt línurnar varðandi notkun þess og að hluta þeirra fjármuna sem falla til vegna notkunar vörumerkjanna verður varið í markaðsstarf á erlendum mörkuðum með það að markmiði að auka eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu. Icelandic er spennandi vörumerki sem stendur fyrst og fremst fyrir gæði og íslenskan uppruna og á mikil tækifæri til framtíðar.“

Deila