Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
6. september 2016

Útboð: Styrkja á ímynd Norðurlanda á alþjóðavettvangi

Útboð: Styrkja á ímynd Norðurlanda á alþjóðavettvangi
Hinn 7. september opnar Norræna ráðherranefndin fyrir útboð þar sem stórum auglýsingastofum og samstarfshópum fyrirtækja verður boðið að bjóða í verkefni um áframhaldandi þróun og virkjun norræna vörumerkisins.

Hinn 7. september opnar Norræna ráðherranefndin fyrir útboð þar sem stórum auglýsingastofum og samstarfshópum fyrirtækja verður boðið að bjóða í verkefni um áframhaldandi þróun og virkjun norræna vörumerkisins.

Saman erum við öflugri
 

Norðurlöndin hafa sameiginleg gildi á borð við gagnsæi, traust, frumlega hugsun, sjálfbærni og mannúð. Nú á að gera þessi gildi, og mörg önnur, sýnilegri og kynna þau í tengslum við metnaðarfullt átak sem á að senda þau skilaboð að Norðurlönd séu öflugri ef þau vinna saman en ef þau starfa hvert í sínu horni.

Norðurlönd hafa meðbyr um þessar mundir. Það viljum við nýta og því ýtum við úr vör kynningarverkefni sem nýtur stuðnings fimm samstarfsráðherra. Verkefninu er ætlað að fanga sameiginleg gildi, tákn, reynslu og hugmyndatengsl Norðurlanda og marka Norðurlöndum stöðu og sýna sérkenni þeirra í samanburði við aðra heimshluta.

Ímyndarsköpun svæða upp á nýtt stig
 

Kynningarverkefnið á í senn að fela í sér samskipti á samfélagsmiðlum, vera rammi utan um viðburði og vera til frjálsra afnota sem fyrirmynd eða verkfærakassi fyrir fyrirtæki, samtök og lönd sem vilja standa að eigin verkefnum eða viðburðum um víða veröld í norrænu samhengi. Jafnframt kemur skýrt fram sú ósk að verkefnið komi „ímyndarsköpun svæða upp á nýtt stig“, eins og segir í útboðsgögnunum.

Auglýsingastofur og samstarfshópar fyrirtækja á sviði samþætts og skipulagðs upplýsingastarfs og ímyndarsköpunar
 

Útboðið hentar stórum auglýsingastofum og samstarfshópum fyrirtækja á sviði samþætts og skipulagðs upplýsingastarfs og ímyndarsköpunar sem búa yfir mikill færni á sviði hönnunar, stafrænnar tækni, fjölmiðlasamskipta, auglýsingagerðar og almannatengsla, auk virkjunar vörumerkja í tengslum við viðburði. Þær auglýsingastofur og samstarfshópar fyrirtækja sem standast frumhæfnismat og sem komast áfram þurfa að sýna fram á mikinn skilning á grunngerð Norðurlanda, hafa mikla alþjóðlega reynslu og þurfa að geta virkjað krafta og kunnáttu sem ekki er til staðar í hefðbundinni ímyndarsköpun svæða.

Nánari upplýsingar á síðu Norðurlandaráðs

Tengiliðir

Nordic Brand Alliance: Morten Grøn, framkvæmdastjóri Design denmark. Netfang: mg@designdenmark.dk 

 

Deila