Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
18. apríl 2013

Valka hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands

Valka hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands
Fyrirtækið Valka hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun, en Valka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á tækjum og hugbúnaði fyrir fiskvinnslu.

Fyrirtækið Valka hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun, en Valka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á tækjum og hugbúnaði fyrir fiskvinnslu. Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku veitti verðlaununum viðtöku.

Á Nýsköpunarþingi voru íslensk sprettfyrirtæki gerð að umfjöllunarefni og voru þrír fyrirlesarar fengnir til að segja frá hraðvaxta fyrirtækjum og stöðu íslenskra sprettfyrirtækja eða svokallaðra „gazella". Tæplega 300 manns sóttu þingið, sem haldið var á Grand hótel Reykjavík.

Valka hefur verið í stöðugri sókn og hlaut meðal annars Vaxtarsprotann 2012 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis og í fyrra var einnig sett upp hjá HB Granda fyrsta röntgenstýrða beinskurðarlínan frá Völku sem jafnframt er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Beinaskurðarlínan staðsetur fiskbein í fiskflökum með röntgen tölvusjón á afar nákvæman hátt og sker beingarðinn sjálfvirkt úr flökunum auk þessa sem búnaðurinn getur skorið flakið í bita. Nýja skurðarvélin – sem er sem fyrr segir sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum – verður sýnd í fyrsta skipti á sjávarútvegssýningunni í Brussel sem hefst þann 23. apríl nk. og er búist við miklum áhuga á vélinni.

Þess má geta að Valka tók þátt í markaðsverkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH) árið 2006 og er þetta því þriðja árið í röð sem fyrirtæki sem hefur tekið þátt í verkefninu fær Nýsköpunarverðlaunin. Á síðasta ári hlaut Primex frá Siglufirði verðlaunin en árið áður fyrirtækið Mentor.


Fyrirtækið Valka
 

Nýsköpunarverðlaun Íslands

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og vísindastarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.

Hér að neðan má sjá myndir frá þinginu

Deila