Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
12. október 2017

Vel heppnuð viðskiptaheimsókn til Vladivostok

Vel heppnuð viðskiptaheimsókn til Vladivostok
Hópur íslenskra fyrirtækja sem þjónusta sjávarútveginn sótti Kyrrahafsströnd Rússlands heim á dögunum. Um var að ræða samstarfsverkefni Íslandsstofu og sendiráðs Íslands í Rússlandi en leiðin lá til borgarinnar Vladivostok.

Hópur íslenskra fyrirtækja sem þjónusta sjávarútveginn sótti Kyrrahafsströnd Rússlands heim á dögunum. Um var að ræða samstarfsverkefni Íslandsstofu og sendiráðs Íslands í Rússlandi en leiðin lá til borgarinnar Vladivostok.

Dagskráin var skipulögð í kringum ráðstefnuna Fishermen Congress í Vladivostok sem haldin var dagana 5. og 6. október. Sendiherra Íslands í Moskvu, Berglind Ásgeirsdóttir, var með í för en eftirtalin fyrirtæki áttu sína fulltrúa á staðnum: Marel, Naust Marine, Nautic/Knarr, Skaginn 3X, Skipasýn og Sæplast.

Rússneskum fyrirtækjum var boðið til sérstakrar kynningar á íslenskum sjávarútvegi og samtals um samstarf auk þess sem hópurinn átti jafnframt fund með tveimur aðstoðarfylkisstjórum á austurströndinni. Að auki heimsótti íslenski hópurinn m.a. Vostochnaya Verf skipasmíðastöðina sem hefur áhuga á að bæta smíði fiskiskipa við þau verkefni sem stöðin sinnir nú.

Á ráðstefnunni tóku íslensku fyrirtækin bæði þátt í hringborðsumræðum um fiskeldi og um fjárfestingar í sjávarútvegi, nýsköpun og alþjóðasamstarfi. Þá fluttu bæði sendiherra og fulltrúi Knarr tölu á opnunarathöfninni þar sem m.a. var komið inn á hvernig sjávarútvegurinn hefði breytt Íslendingum úr einni fátækustu þjóð Evrópu í eina af þeim ríkustu og hvernig tæknilausnir íslenskra fyrirtækja hafa gert að verkum að brot af veiði fyrri ára skilar í dag þjóðarbúinu auknum verðmætum.

Var íslenskum lausnum og fyrirtækjum sýndur mikill áhugi auk þess sem sendiherra fór í fjölmörg viðtöl við fjölmiðla.  

Deila