Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
30. september 2014

Vestnorden Travel Mart hefst í dag

Vestnorden Travel Mart hefst í dag
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu mun setja Vestnorden Travel Mart ferðakaupstefnuna í 29. skiptið í dag, þriðjudag, í Laugardalshöll.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu mun setja Vestnorden Travel Mart ferðakaupstefnuna í 29. skiptið í dag, þriðjudag, í Laugardalshöll.

Vestnorden Travel Mart er mikilvægasta kaupstefnan í ferðaþjónustu sem haldin er á Norður-Atlantshafssvæðinu. Rúmlega 600 gestir sækja kaupstefnuna í ár; ferðaþjónustuaðilar landanna þriggja auk kaupenda ferðaþjónustu frá öllum heimshornum.

Frummmælandi kaupstefnunnar er Peter Greenberg, margfaldur Emmy verðlaunahafi frá CBS fréttastofunni. Hann var útnefndur af Travel Weekly árið 2012 sem einn af áhrifamestu mönnum ferðaþjónustunnar ásamt þeim Bill Marriot og Richard Branson. Peter Greenberg er reglulegur gestur í þekktum sjónvarpsþáttum vestanhafs eins og Oprah Winfrey Show og The View. Greenberg sendir út frá Íslandi og mun taka nokkra góða Íslendinga tali fyrir þátt sinn sem síðar verður útvarpað í Bandaríkjunum.

Peter Greenberg mun jafnframt sitja fyrir svörum á blaðamannafundi kaupstefnunnar kl. 12:15 þann 30. september ásamt Ingu Hlín Pálsdóttur, forstöðumanni ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, Ólöfu Ýrr Atladóttur, ferðamálastjóra, Anders Stenbakken, framkvæmdastjóra Visit Greenland og Guðrið Højgaard, framkvæmdastjóra Visit Faroe Islands. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Ragnheiður Elín Árnadóttir mun ávarpa ferðakaupstefnuna kl. 14:30 þennan sama dag.

Kaupstefnan fær aukið vægi á hverju ári í takt við aukinn fjölda ferðamanna að sögn Ingu Hlínar Pálsdóttur. „Ísland, Grænland og Færeyjar eru allt áfangastaðir sem búa yfir einstökum tækifærum fyrir ferðamenn. Náttúran, fólkið og menningin eru eiginleikar sem áfangastaðirnir þrír deila að einhverju leyti og við finnum mikinn styrk í því að geta unnið saman á þessum vettvangi að því að kynna löndin saman. Löndin bjóða öll spennandi og fjölbreytta ferðaþjónustu sem fellur vel að þörfum okkar markhópa,“ segir Inga Hlín.

Íslandsstofa er framkvæmdaaðili ferðakaupstefnunnar í samstarfi við ferðamálasamstarf Norður-Atlantshafsins, en meginhlutverk þess er að móta sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir svæðið Grænland, Ísland og Færeyjar og styrkja ýmis verkefni sem efla ferðaþjónustu innan þess. Ferðakaupstefnan er haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum eða á Grænlandi
Að ferðakaupstefnunni stendur North Atlantic Tourism Association (NATA), ferðamálasamstarf Norður-Atlantshafsins og samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Birna Jörgensen, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu
Sími 511 4000 / Farsími 898-8749
Netfang: gudrunbirna@islandsstofa.is

Ingvar Örn Ingvarsson, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu
Sími 511 4000 / Farsími 659 1444
Netfang: ingvar@islandsstofa.is

Nánari upplýsingar um Vestnorden:

Vestnorden Travel Mart
Ferðamálasamstarf Norður-Atlantshafsins (NATA)
Peter Greenberg

Deila