Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
9. desember 2015

Viltu komast á markað í Kanada?

Viltu komast á markað í Kanada?
Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í Centrallia fyrirtækja-stefnumótinu sem haldið verður í Winnipeg í Kanada 25.- 27. maí 2016.
Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í Centrallia fyrirtækja-stefnumótinu sem haldið verður í Winnipeg í Kanada 25.- 27. maí 2016.
Um er að ræða tveggja daga fundarlotu þar sem færi gefst á að ná tengslum við mörg hundruð fyrirtæki frá Kanada og fleiri löndum. Sérstök áhersla er á heimskautasvæðin og viðskiptatækifæri á norðlægum slóðum. 
 
Nánari upplýsingar um verð og fyrirkomulag fundanna veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 5114000. 
 
Skráning þarf að liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar nk. ef njóta á verulegs afsláttar af þáttökugjaldi. 
 
Frétt af síðustu þátttöku þegar kaupstefnan var haldin árið 2012 má lesa hér
 

Deila