Loading…
Íslandsstofa
Íslandsstofa
22. september 2015

Viltu ná árangri á erlendum markaði? Skráðu fyrirtækið þitt í ÚH verkefnið

Viltu ná árangri á erlendum markaði? Skráðu fyrirtækið þitt í ÚH verkefnið
Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH) er útflutningsverkefni sem er sniðið að þörfum fyrirtækja sem stefna að útflutningi, eða hafa þegar tekið fyrstu skrefin í þá átt. Verkefnið er nú haldið 26. árið í röð.

Auk þess að öðlast mikilvæga þekkingu á erlendri markaðssetningu njóta þátttakendur í ÚH aðstoðar sérfræðinga við mótun og gerð markaðs- og aðgerðaáætlunar fyrir sókn á erlendan markað. Unnið er tvo daga í senn í hverjum mánuði yfir sjö mánaða tímabil frá október 2015 til apríl 2016.
 
Undanfarin ár hefur verið mikil eftirspurn eftir þátttöku í ÚH, en að hámarki 10 fyrirtæki komast inn í verkefnið á hverju ári. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 15. október.
 
Deila